Síða 1 af 1

2 ford econoline til sölu 1979 1977

Posted: 16.aug 2013, 00:22
frá magnusv
Afsakið rusl auglýsingu henti þessu saman í flýti

er með 2 econoline-a

einn þeirra er 77 árgerð mjög flottur og snilldar breyting á þeim bíl en því miður þá er boddý ónýtt

hann er með dana 44 framan og aftan loftlæstur að framan og aftan,
auka milligír
351 með holley blöndung (hrikalega sprækur) ( mótor kominn úr)
er á fínum 38" dekkjum man bara ekki hvernig dekkjum
2 kastarar að framan og mjög gott og öflugt spil

hann er með 2 stólum frammí og tómur að aftan, hann er með 13 skoðun og er mjög svo góður í stýri og allur svoleiðis búnaður er í tipp topp standi

en hann er skiptingarlaus það var C6 sem ég tók og setti í hvíta bílinn



svo er ég með hvítan ford econoline 1979 sem er með háum topp og mjög flott innréttaður með skápum og meððí

hann er með brúnum stólum sem eru með loftpúðastuðning fyrir bakið og rafmagni og hita í sætum og bekkur sem breytist í rúm nema það þyrfti kannski að klæða pullurnar uppá nýtt því þær eru ógeðslegar á litinn (ekkert rifnar bara ljótar á ltiinn)

svo er það mótorinn hann er með 6,2 dísel úr chevrolet mjög eyðslugrannur og góður nema það þyrfti að klára að ganga frá rafmagni, fer ekki straumur á glóðarkertin
mótor er samt mjög góður

svo er það skiptingin ég tók C6 skiptinguna úr þessum gráa nema núna skiptir hann sér ekki upp í 3 þrepið en hún er samt mjög góð þetta er bara stillingaratriði snuðaði ekkert og ekkert vesen þegar hún var í þessum gráa

dana 60 framan og aftan mjög öflugar hásingar, kominn á gorma að aftan og þarf að græja að framan

hann stendur á 36" dekkjum en kemst stærra undir

þessi hvíti er næstum því riðlaus og mjög flottur að innan en þarf bara að klára að ganga frá, ég keypti þennan gráa og ætlaði að bjarga honum en boddy er bara því miður ónýtt þannig ég ætlaði að færa frammendana á milli og svoleiðis

ég óska eftir tilboði í þennan pakka og skoða að selja úr gráa bílnum jafnvel skoða öll skipti upp og niður!

Re: 2 ford econoline til sölu 1979 1977

Posted: 20.aug 2013, 02:16
frá magnusv
upp

Re: 2 ford econoline til sölu 1979 1977

Posted: 20.aug 2013, 12:19
frá Bad
Verdhugmynd takk

Re: 2 ford econoline til sölu 1979 1977

Posted: 15.sep 2013, 23:48
frá magnusv
verðhugmynd er í kringum milljón en skoða öll tilboð og öll skipti

2 fullir bílar af gramsi með þessu

Re: 2 ford econoline til sölu 1979 1977

Posted: 16.sep 2013, 00:38
frá magnusv
fer á hrikalega góðu staðgreiðslutilboði!

Re: 2 ford econoline til sölu 1979 1977

Posted: 16.sep 2013, 21:40
frá mundi636
magnusv wrote:verðhugmynd er í kringum milljón en skoða öll tilboð og öll skipti

2 fullir bílar af gramsi með þessu

Það vantar ekki verðbólguna þarna

Re: 2 ford econoline til sölu 1979 1977

Posted: 24.sep 2013, 21:03
frá magnusv
svo þú segir það

Re: 2 ford econoline til sölu 1979 1977

Posted: 25.sep 2013, 20:36
frá Viddi72
A hvað fer bara sa grái?

Re: 2 ford econoline til sölu 1979 1977

Posted: 19.des 2013, 18:36
frá magnusv
skjóttu tilboði á mig

Re: 2 ford econoline til sölu 1979 1977

Posted: 07.jan 2014, 15:07
frá bjarkimar89
er með 44"breittan hilux v6 bensín 4runner vél bíllin er 88árg fornbíll svartur óriðgaður er á 38" dekjum ef þú hefur áhuga

bjarkimar89@live.com

Re: 2 ford econoline til sölu 1979 1977

Posted: 29.jan 2014, 22:18
frá magnusv
fer á mjög góðu tilboði ef hann fer í næstu viku! 450þúsund fyrir hvíta bílinn og eitthvað grams fylgir

Re: 2 ford econoline til sölu 1979 1977

Posted: 30.jan 2014, 04:53
frá Valdi B
hvað fæst sá grái á ? fylgir windsor mótorinn með honum ?

Re: 2 ford econoline til sölu 1979 1977

Posted: 24.feb 2014, 17:49
frá magnusv
windsor mótorinn er kominn ofan í 70mustang, sá grái er ekki til sölu nema sá hvíti seljist

Re: 2 ford econoline til sölu 1979 1977

Posted: 24.feb 2014, 18:15
frá ÍVAR
er sa hviti enn til solu hvad er verdid

Re: 2 ford econoline til sölu 1979 1977

Posted: 25.feb 2014, 01:00
frá magnusv
sæll ef sá hvíti fer fljótt þá er það 450þúsund með húsbílaborði og 2 captain stólum, skoða öll skipti og allt brask ÞARF að fara á næstu dögum

Re: 2 ford econoline til sölu 1979 1977

Posted: 25.feb 2014, 06:53
frá ÍVAR
vantar siman hja ther minn simi er 8939806

Re: 2 ford econoline til sölu 1979 1977

Posted: 25.feb 2014, 15:11
frá magnusv
Minn er 6936780 bara hringja eftir 5 a daginn

Re: 2 ford econoline til sölu 1979 1977

Posted: 25.feb 2014, 20:33
frá magnusv
hringja fyrir klukkan 12 eða eftir klukkan 5 á daginn