Síða 1 af 1

37" Pajero. (SELDUR)

Posted: 08.aug 2013, 16:52
frá MattiH
Til sölu Mitsubishi Pajero 2.8tdi.
Gott viðhald/smurbók,
SSK (Super Select).
Árg 1998,
Ekinn 317þús.


Image
Image

Image

Tauáklæði, rafm í rúðum, hiti í sætum, topplúga (virkar), CD, Samlæsingar, stillanleg afturfjöðrun.

Endurnýjað: vatnskassi, vatnsdæla, tímakeðja, rafgeymir, ventlalokspakkning, spíssar, 2.5" sérsmíðað púst, Glæný glóðarkert, Nýlega búið að sjóða í grind, Bilstein framdemparar.
Búnaður:Loftdæla, vinnuljós aftan, kastarar, slökkvitæki, loftlæsing aft, prófíltengi, drullutjakkur, VHF, boost og volt mælar.
Ókostir: Lélegar lamir á afturhlera, Vantar útvarpsloftnet, Smá ryð í vinstri síls, miðstöð aftur í óvirk, kastarar ótengdir.

Bílnum var breytt af 35" á 37" 2012. Hásing var færð aftur um 7,5cm, spyrnur færðar, Bilstein B6 að framan, ný skástífa (krómöxull), ballansstöng fjarlægð, gormasæti síkkuð og skrúfað upp á klöfum. Stærri kantar frá Gunnari Pálma.
Orginal hlutföll (4:88). Hann er á nýlegum 37"x15 Toyo M/T dekkjum og 14" breiðum tveggja ventla stálfelgum.
Bíllinn lýtur nokkuð vel út miðað við aldur og fyrri störf ;)

Verðhugmynd er 750.000kr.
Óska eftir tilboðum, Hann fer mjög ódýrt í staðgreiðslu.
Skoða eingöngu skipti á ódýrari bíl.
Upplýsingar á matti@opusmedia.

Matti.

Re: 37" PAJERO !!!

Posted: 19.aug 2013, 22:29
frá gunnarbjarki
Sæll
Hefur þú áhuga að skoða skipti á Ford F-150 2004 arg ekinn 200.þ mjög fallegur bíll og mikið yfir farinn.
Kv Gunnar Bjarki

Re: 37" PAJERO !!!

Posted: 20.aug 2013, 16:26
frá MattiH
Sæll
Hefur þú áhuga að skoða skipti á Ford F-150 2004 arg ekinn 200.þ mjög fallegur bíll og mikið yfir farinn.
Kv Gunnar Bjarki


Sæll.
Nei, ég hef ekki áhuga.

Re: 37" PAJERO !!!

Posted: 20.aug 2013, 17:28
frá naffok
Er þessi bíll beinskiptur eða sjálfskiptur??

Re: 37" PAJERO !!!

Posted: 21.aug 2013, 13:20
frá MattiH
Er þessi bíll beinskiptur eða sjálfskiptur??


Hann er sjálfskiptur.

Re: 37" PAJERO (lækkað verð)

Posted: 23.aug 2013, 10:09
frá MattiH
Enn til

Re: 37" PAJERO

Posted: 17.sep 2013, 03:07
frá snoozygreen

Re: 37" PAJERO

Posted: 17.sep 2013, 08:43
frá MattiH


Verð að segja pass, takk samt.

Re: 37" Pajero.

Posted: 05.feb 2014, 17:10
frá MattiH
Þessi er enn til ;)

Re: 37" Pajero.

Posted: 07.feb 2014, 14:42
frá bjorgvin
skipti á 200cc kínahjóli (fjórhjól) og eitthvað upp í

Re: 37" Pajero.

Posted: 07.feb 2014, 20:44
frá MattiH
skipti á 200cc kínahjóli (fjórhjól) og eitthvað upp í


Það fer nú allt eftir milligjöfinni ;)

Re: 37" Pajero. (Lækkað verð)

Posted: 11.mar 2014, 18:04
frá MattiH
Óska eftir dónatilboðum ;)

Re: 37" Pajero. (Lækkað verð)

Posted: 11.mar 2014, 20:17
frá Hakon I
350.000

Re: 37" Pajero. (Lækkað verð)

Posted: 11.mar 2014, 20:42
frá MattiH
350.000


Aðeins of dónalegt ;)

Re: 37" Pajero. (SELDUR)

Posted: 14.mar 2014, 18:36
frá MattiH
Seldur

Re: 37" Pajero. (SELDUR)

Posted: 09.jan 2015, 08:24
frá grimseyhh
er að spá í að kaupa þennan bíl sem þú áttir geturu haft samband við mig.
henning grimsey 8933185.