Síða 1 af 1

MMC Pajero dísel 1998 38" breyttur - (SELDUR)

Posted: 15.júl 2013, 15:14
frá fogeti
Til sölu þessi gullmoli.

MMC Pajero
Dísel 2,800cc
Ekinn aðeins 189þ !
Sjálfskiptur
38" breyttur á Ground Hawk dekkjum. Ófúin og ótöppuð. Ca.10mm í miðju, minna í köntum.

Aukahlutir:
CB talstöð
Piaa kastarar
Flott ryðfrí kastaragrind
Piaa fjartstýrt leitarljós á toppnum
Toppgrind
Skíðabogar með skóflu
Dráttarbeisli
Stigbretti
Brettakantar
Alpinespilari með Aux og mp3
Gamalt Funero GPS sem virkar fínt
Led ljós inní bíl hjá fótum og í skotti
Hlutföll (4:88)
14" breiðar Patrol felgur, nýlega sprautaðar og með kúluloka

Ástand:
Smurbókin er 110% og hefur verið smurður á 7000km fresti frá upphafi!
Bíllinn hefur verið útá landi alla tíð og er því alveg óryðgaður. Grind er í toppstandi og boddý overall mjög gott.
Innrétting í mjög flottu standi!
Nýlega búið að skipta út öllum fóðringum að aftan sem er mikill kostur.
Skipt um alla vökva fyrir 2000km
Ný glóðarkerti
Nýjir afturdemparar

Skiptiverð er 1.290þ. en fæst á 850þ stgr!

Staðsettur í Reykjavík.

Sími 865-6979 eða PM.

Image

Image

Image

Image

Re: MMC Pajero dísel 1998 38" breyttur - geggjað eintak

Posted: 15.júl 2013, 21:54
frá saltfisk
Sæll Flottur bíll

hvað er hann að eyða?

KV Vigfús

Re: MMC Pajero dísel 1998 38" breyttur - geggjað eintak

Posted: 16.júl 2013, 00:46
frá fogeti
Takk fyrir það. Eyðsla er ca 14-15 lítrar innanbæjar og 9-10 í langkeyrslu. Er mjög ánægður með eyðsluna.

Gleymdi einnig að nefna að hann er með hlutföllum 4:88 og hann er með aukasæti í skottinu.

Re: MMC Pajero dísel 1998 38" breyttur - geggjað eintak

Posted: 19.júl 2013, 11:05
frá Ingimar
a

Re: MMC Pajero dísel 1998 38" breyttur - geggjað eintak

Posted: 19.júl 2013, 13:17
frá ihþ
Glæsilegur bíll ! En ég verð að fá að draga í efa þessar eyðslutölur hjá þér. Átti í mörg ár einn svona á 33" hjólum og hann fór aldrei niður fyrir 12-13 og uppí 20+ á veturna í drifunum.

Re: MMC Pajero dísel 1998 38" breyttur - geggjað eintak

Posted: 19.júl 2013, 18:32
frá anaconda
ihþ wrote:Glæsilegur bíll ! En ég verð að fá að draga í efa þessar eyðslutölur hjá þér. Átti í mörg ár einn svona á 33" hjólum og hann fór aldrei niður fyrir 12-13 og uppí 20+ á veturna í drifunum.

þá hefur þú átt einstaklega slæmt eintak é hef farið niður fyrir 10 i langkeyrslu á 33" sjalskiftum

Re: MMC Pajero dísel 1998 38" breyttur - geggjað eintak

Posted: 19.júl 2013, 20:42
frá khs
Ég á sama model á 38" og hef farið niður í 9 lítra með drekkhlaðinn bíl frá Rvk til Geysis. Svo þetta er alveg hægt. Áfram Pajero !

Re: MMC Pajero dísel 1998 38" breyttur - geggjað eintak

Posted: 20.júl 2013, 13:02
frá HaffiTopp
Til í að skipta á dýrari?

Re: MMC Pajero dísel 1998 38" breyttur - geggjað eintak

Posted: 20.júl 2013, 18:02
frá Ingimar
Til í að borga 750þús í peningum

Re: MMC Pajero dísel 1998 38" breyttur - geggjað eintak

Posted: 22.júl 2013, 12:19
frá fogeti
HaffiTopp wrote:Til í að skipta á dýrari?


Hvað ertu með ?

Re: MMC Pajero dísel 1998 38" breyttur - geggjað eintak

Posted: 22.júl 2013, 23:04
frá motörhead
Viltu skipta á Defender 97' 38"