Síða 1 af 1

Ford Econoline 1989 38"

Posted: 17.apr 2013, 09:50
frá Elisvk
Þessi fæst á lítið.

Hann er innréttaður sem húsbíll án eldhússinnréttingar.

Með hornsófa sem breytist í rúm. 4 mjög þæginlegir kapteinastólar. Framstólar með mörgum rafmagnsstillingum. Dúkalagt gólf. Mjög snirtilegt.

Mikið upphækkaður toppur í mjög góðu standi, sér ekki á honum. Sérinnréttaður með góðri toppklæðningu og skápum allann hringinn.

Vél: 351 Winsor með 3 gíra skiptingu. hann er með rwd og 4x4. Flott útvarp og góðir hátalarar.

Bíllinn er með brotinn öxul vintra meginn að framan. Þarf einnig að kaupa nýjar legur á sama stað. Þetta fæst allt saman á rúmar 19þ kr á ljónsstöðum.

Eitt dekk er loftlaust og hefur staðið á því í einhvern tíma.

Body er nokkuð ryðgað eins og gerist með þessa bíla en þó vel viðgerðarhæft. Grind lítur vel út.

Bíllinn er staðsettur á Blönduósi númerslaus. Get ekki farið og sýnt hann nema einhver sé nánast fastur á að kaupa og búið að tala um verð.

Síðast þegar ég kom að honum var hann vel gangfær, dettur alltaf strax í gang og gengur vel. Gæti þurft að skipta um olíu og kerti.

Það hvíla á honum rúmar 80þ kr í bifreiðagjöld.

Tilvalinn í smá uppgerð er alveg að verða fornbíll (2014) þá eru engin bifreiðagjöld og aðeins 10þ kr á ári í tryggingar eins og margir vita. Einnig er hann hræódýr miðað við hvað þú ert að fá.

Myndir er hægt að sjá hér:

https://bland.is/classified/entry.aspx? ... Id=1685108

Re: Ford Econoline 1989 38"

Posted: 18.apr 2013, 01:40
frá Hafþór Jörundsson
Sæll, áttu eitthvað meira með Econoline, ef svo þá er ég með mjög fínan Volvo 850 í skiptum?

Re: Ford Econoline 1989 38"

Posted: 19.apr 2013, 21:25
frá Elisvk
Hafþór Jörundsson wrote:Sæll, áttu eitthvað meira með Econoline, ef svo þá er ég með mjög fínan Volvo 850 í skiptum?


hvað áttu við?

Ef þú ert að tala um að borga með honum þá kemur það ekki til greina. Hann er á gjafaverði, get sett á þennan bíl miklu hærra en ég geri, þarf bara að losa smá pening strax. Vill ekki sjá nein skipti nema það sé amk 100þ í peningum með.

Takk fyrir.

Re: Ford Econoline 1989 38"

Posted: 20.apr 2013, 01:36
frá Hafþór Jörundsson
Elisvk wrote:
Hafþór Jörundsson wrote:Sæll, áttu eitthvað meira með Econoline, ef svo þá er ég með mjög fínan Volvo 850 í skiptum?


hvað áttu við?

Ef þú ert að tala um að borga með honum þá kemur það ekki til greina. Hann er á gjafaverði, get sett á þennan bíl miklu hærra en ég geri, þarf bara að losa smá pening strax. Vill ekki sjá nein skipti nema það sé amk 100þ í peningum með.

Takk fyrir.

Auglýsingin sem þú vísar í á bland.is þar býðurðu skipti bæði ód/dýrari?