Síða 1 af 1

38" L200 diesel turbo - Tilboð 600 þús.

Posted: 27.des 2012, 14:10
frá olafurnielsen
Ég er með glæsilegan 38" breyttan L200 jeppa til sölu. Hann er árgerð 1997 og er ekinn 229.732 km. (26. júní).

TILBOÐ: 600 þús. kr.

Image

Fleiri og ítarlegri myndir:
http://imgur.com/a/BpVYH

Þetta er algjör draumaferðabíll og hef ég farið í ótal fjalla- og veiðiferðir á honum undanfarið ár. Ástæða sölu er að ég starfa núna og bý í miðbænum þannig að svona stór bíll hentar mér ekki auk þess sem hann á skilið að vera hjá einhverjum sem notar hann meira. Hann hefur því staðið óhreyfður síðustu mánuði en athugasemdir sem komu á hann í skoðun voru vegna spyrnu öðru megin að framan, vantaði ljós fyrir háu ljósin í mælaborð og slökkvitækið þarf að skoða.

Bíllinn er mikið endurnýjaður og er langt frá því að líta út fyrir að vera 97 módelið:
- Frábært lakk, málaður 2010
- Mótor tekinn upp í ágúst 2012, nýr sveifarás, höfuðlegur, pakkdósir, reimar, mótorpúðar o.fl.
- Ný innrétting, sæti og teppi úr 2005 bíl
- Ný kúplingsdæla í des 2012

Nánari upplýsingar:
2,5 lítra turbo diesel beinskiptur
Kemur á fremur slitnum 37" Good year dekkjum
Vökvastýri
5 manna
Vinnuljós á hliðum
Ljóskastarar að framan
Ljóskastarar á þaki
Prófíltengi að framan og aftan
Loftkútur og lagnir og tengingar fyrir loftdælu
Fourlink að aftan
Reyklaust ökutæki
Aukatankur
VHF og CB talstöðvar
Skíðafestingar á toppi
Drullutjakkur
Skófla
Pallhús fylgir með
Mótorar og loom fylgja til að setja rafmagn í rúður, sem var ekki klárað í innréttingarskiptingu

Og svo er ég eflaust að gleyma einhverju fleiru.

Skoða öll tilboð og skipti.

Bíllinn er á höfuðborgarsvæðinu og get ég sýnt hann hvenær sem er. Nánari upplýsingar í síma 865-4520 eða á olafur@form5.is.

Kær kveðja, Ólafur

Re: Glæsilegur 38" L200 diesel turbo til sölu

Posted: 27.des 2012, 14:13
frá Hfsd037
Ansi verklegur þessi

Re: Glæsilegur 38" L200 diesel turbo til sölu

Posted: 27.des 2012, 17:48
frá Trosturn
Hvad seturu a hann?:)

Re: Glæsilegur 38" L200 diesel turbo til sölu

Posted: 27.des 2012, 21:14
frá HaffiTopp
Hvernig er honum breytt, á þá við hvort hann sé boddyhækkaður eða skrúfaður upp á klöfum. Eða þá bæði? Eða eru klafarnir síkkaðir? Er hann með manual lokur að framan?

Re: [TILBOÐ] Glæsilegur 38" L200 diesel turbo til sölu

Posted: 07.jan 2013, 10:04
frá olafurnielsen
ttt

Re: [TILBOÐ] Glæsilegur 38" L200 diesel turbo til sölu

Posted: 20.jan 2013, 11:16
frá olafurnielsen
Þessi er enn til sölu. Er til í mjög gott staðgreiðsluverð.

Re: [TILBOÐ] Glæsilegur 38" L200 diesel turbo til sölu

Posted: 31.jan 2013, 11:43
frá olafurnielsen
Tilboð 790 þús. kr.

Re: [TILBOÐ] Glæsilegur 38" L200 diesel turbo til sölu

Posted: 06.mar 2013, 09:15
frá olafurnielsen
Þessi er enn til sölu. Flottur í snjóinn.

Re: [TILBOÐ] Glæsilegur 38" L200 diesel turbo til sölu

Posted: 09.mar 2013, 22:18
frá Loud1
skoðarðu skipti á subaru impreza gt wagon, blár, keyrður 130þ, nýlega upptekinn mótor og styrktur. ásett er 1400 en hann er of ríkur og það þarf að skipta um eitthvað í gírkassa því hann dettur úr 3. gír. Að öðru leyti heillegur bíll sem var almálaður 2009 og er mjög þéttur. sendu mér skilaboð