SELDUR

User avatar

Höfundur þráðar
ingi árna
Innlegg: 101
Skráður: 19.jan 2011, 12:35
Fullt nafn: Ingólfur Árnason
Bíltegund: HJ-61 "88

SELDUR

Postfrá ingi árna » 05.des 2012, 18:13

Hann er með athugasemdalausa skoðun 13 miða.

Mótor er 3,4 lítra disel mótor sem kom orginal í Land cruiser 40, við hann er síðan búið að bæta túrbínu úr Rocky sem er að skila 13 pundum þegar mest lætur, kemur inn í c.a. 1000 snúningum og skilar bílnum mjög svo skemtilega áfram. Við mótorinn er svo búið að setja Afgas, boost, vatns, volt og olíþrýstingsmæli. Snúnigshraðamælir fylgir.

Gírkassi og millikassi er einnig úr 40 cruiser.

Hi-lux hásing að framan með gormum og stífum úr range rover ásamt stillanlegum Rancho 9000 dempurum. 4:88 hlutfall. ARB lás er til upp í hillu, gæti fylgt með.

60 cruiser afturhásing með ARB loftlás, Gormum og Rancho 9000 dempurum. 4:88 hlutfall

Allt kram í bílnum er í góðu standi, nýlegar hjólalegur í báðum rörum, nýlegir diskar og klossar að framan, fer að detta á tíma að aftan. Nýjar fóðringar í öllum stýfum að framan og líta vel út að aftan, drif að framan keyrt c.a. 2000 km og var um leið skipt um allar legur.

Fyrir um einu og hálfu ári spað reif ég bílinn og tók alla grindina ryðbætti styrkti pússaði og málaði, algjörlega riðlaus. Því næst var fundið mjög svo heillegt boddý þar sem gert var við það litla ryð sem var í því og málað á viðurkendu verkstæði. Því er hann algjörlega ryðlaus!!!

Á gripinn eru þeir meistarar í Briddebilt búnir að smíða rörastuðara framan og aftan á hann með prófíltengjum , hrikalega vel gert...

Framan á honum eru svo Hella kastarar sem búið er að Xenon væða.

Búinn að setja í hann stærri olíutank, tekur 100 lítra í stað 50

Vetrardekkin eru 38“ Mudder, tæplega hálf slitin og þar af er eitt dekkið splunku nýtt. Þau eru svo á 14“ breiðum 60 cruiser felgum, einnig eru til tvær stakar 60 cruiser felgur sem fylgja með til vara.

Sumardekkin eru 37“ Goodyear, tæplega hálfslitin á 10“ stálfelgum

Pioneer geislaspilari með 2 stk JBL 150W hátölurum.

Ég er svo örugglega að gleima einhverju eins og öllu varahlutadraslinu sem fylgir með þessu og ég nenni ekki að telja upp hér, einhvað af kössum og einhverju gramsi. En sjón er sögu ríkari og hikið ekki við að vera í bandi ef áhugi er fyrir hendi.

Ég hafði hugsað mér að fá 800 þús fyrir allan pakkan en svo er það umsemjanlegt eftir því hvað menn vilja af dóti með þessu. Að öðru leiti er bíllin klár á fjöll.

Hákon Þór
696-0353
Síðast breytt af ingi árna þann 20.feb 2013, 08:37, breytt 1 sinni samtals.



User avatar

Höfundur þráðar
ingi árna
Innlegg: 101
Skráður: 19.jan 2011, 12:35
Fullt nafn: Ingólfur Árnason
Bíltegund: HJ-61 "88

Re: Til sölu Daihatsu Rocky 3,4 turbo diesel

Postfrá ingi árna » 05.des 2012, 18:15



ragnarb
Innlegg: 25
Skráður: 22.nóv 2012, 19:42
Fullt nafn: Ragnar B Bjarnarson
Bíltegund: dodge

Re: Til sölu Daihatsu Rocky 3,4 turbo diesel

Postfrá ragnarb » 16.jan 2013, 20:43

Viltu skipti á Dodge Dakoda árg 2000
4,7 vél
2 dekkjagangar á álfelgum
pallhús

Ragnar
s-7726010

User avatar

LFS
Innlegg: 579
Skráður: 10.apr 2010, 11:39
Fullt nafn: lúðvik freyr sverrisson
Bíltegund: nissan patrol y60

Re: Til sölu Daihatsu Rocky 3,4 turbo diesel

Postfrá LFS » 16.jan 2013, 20:55

göðveikur rocky væri reyndar til i þennan :)
1994 nissan patrol 2.8l 44"
1994 toyota hilux 2.4l 38"
1996 toyota tacoma 2.7l 32"
1987 jeep cherokee 4.0l 38"
1988 jeep wrangler 4.2l 31"
1982 chevrolet custom deluxe 6.2l 33"
1976 international scout 5.2l 38"

User avatar

Haffi
Innlegg: 313
Skráður: 31.jan 2010, 23:01
Fullt nafn: Hafsteinn Ingi Gunnarsson
Bíltegund: Toyhatsu Rocky

Re: Til sölu Daihatsu Rocky 3,4 turbo diesel

Postfrá Haffi » 16.jan 2013, 21:14

jamm ég á þennan í dag
Toyhatsu Rocky 38" - Kvekindið
Volvo 240, 740, S70 ofl


Til baka á “Jeppar”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur