Síða 1 af 1

TS Jeep Cherokee 36" '91

Posted: 11.nóv 2012, 21:29
frá Doror
Er með þennan til sölu.

Árgerð 1991, ekinn um 260.000. Sjálfskiptur með 4l HO vélinni. Millikassi með 2H, 4H, 4 part time og 4Lo.
Bílinn er nokkuð góður þó vissulega sé komið ryð í hann. Kemur á lélegum 36" mudder sem eru samt ágæt í akstri og halda lofti vel. Fylgja svo með 33" sumardekk á góðum álfelgum.
4,56 hlutföll og loftlæsing í afturdrifi. Loftdælan fyrir það er hins vegar biluð en læsingin er í lagi. Skipt um allt í afturdrifi fyrir 1,5 ári síðan.
Air condition dæla til að pumpa í dekk. Það er í honum CB stöð, CD og 2 höfuðpúðar.
Nýbúið að smíða undir hann seinni helminginn af pústinu með nýjum hljóðkút.

Bíllinn selst skoðaður. Hrikalega flott vínrauð innrétting sem er mjög heil.

Ásett 350.000 með 1/4 tanki af bensíni.
Skoða skipt á fólksbíl eða götuhjóli.

300.000 staðgreitt.

Myndir:
http://www.facebook.com/media/set/?set=a.10151492389870898.597090.538965897&type=1
Image
Image

Símanúmer: 897-0888

Re: TS Jeep Cherokee 36" '91

Posted: 11.nóv 2012, 22:29
frá Doror
Jújú, hann fylgir líka. Mjög mikilvægt að geta séð hversu heitt henni er orðið.

Re: TS Jeep Cherokee 36" '91

Posted: 11.nóv 2012, 22:36
frá Oskar K
hvaða hásing er undir honum að aftan ?

Re: TS Jeep Cherokee 36" '91

Posted: 12.nóv 2012, 00:05
frá Doror
Dana 35 ur 89 argerd. Ekki splitti a oxlum. Dana 30 ad framan.

Re: TS Jeep Cherokee 36" '91

Posted: 12.nóv 2012, 00:20
frá yngvis
Ertu til í skifti á '96 Legacy og eitthvað á milli?

Re: TS Jeep Cherokee 36" '91

Posted: 12.nóv 2012, 11:36
frá hjalz
skodaru skipti ?

Re: TS Jeep Cherokee 36" '91

Posted: 12.nóv 2012, 12:30
frá Doror
Sælir,

það er varla að það taki því að skipta svona ellismellum. Menn mega alveg senda mér hugmyndir á skilaboðum eða hringja í 897-0888 og bjóða en aðalega er ég að sækjast eftir peningum.

Re: TS Jeep Cherokee 36" '91

Posted: 12.nóv 2012, 12:30
frá Doror
yngvis wrote:Ertu til í skifti á '96 Legacy og eitthvað á milli?


Hversu mikið er eitthvað?

Re: TS Jeep Cherokee 36" '91

Posted: 12.nóv 2012, 14:33
frá glo
Hvar og hversu mikið ryð er í bílnum og hvar er hægt að skoða

Re: TS Jeep Cherokee 36" '91

Posted: 14.nóv 2012, 13:14
frá Doror
Þessi er ennþá til, skoða að taka fólksbíl í skiptum.

Re: TS Jeep Cherokee 36" '91

Posted: 16.nóv 2012, 00:42
frá Doror
Það á að snjóa á morgun.

Re: TS Jeep Cherokee 36" '91

Posted: 19.nóv 2012, 21:21
frá Doror
Ennþá til þessi

Re: TS Jeep Cherokee 36" '91 - Hætt við sölu.

Posted: 29.nóv 2012, 11:20
frá Doror
Ákvað að bíða aðeins með að selja þennan, það er nú einu sinni að detta í snjó.

Re: TS Jeep Cherokee 36" '91

Posted: 06.mar 2013, 17:46
frá Doror
Þessi er aftur til sölu, yndislegur bíll sem er til í allt.

Re: TS Jeep Cherokee 36" '91

Posted: 06.mar 2013, 17:55
frá runar7
væri gamann að sjá myndir facebook linkur virkar ekki

Re: TS Jeep Cherokee 36" '91

Posted: 06.mar 2013, 18:03
frá Doror
var að opna facebók albumið fyrir públikinn. Ætti að virka núna.

Re: TS Jeep Cherokee 36" '91

Posted: 07.mar 2013, 21:02
frá Doror
gott stgr verð.

Re: TS Jeep Cherokee 36" '91

Posted: 10.mar 2013, 17:53
frá Doror
tilbuin i ferð. fer a goðu stgr verði.

Re: TS Jeep Cherokee 36" '91

Posted: 11.mar 2013, 00:48
frá Doror
Án efa ein ódýrasta leiðin til að komast í páskaferðina.

Re: TS Jeep Cherokee 36" '91

Posted: 12.mar 2013, 22:07
frá Doror
Þessi fékk 2014 skoðun í dag nánast athugarsemdarlaust.

Re: TS Jeep Cherokee 36" '91

Posted: 18.mar 2013, 00:00
frá Doror
Jæja nú þarf þessi að fara til að búa til pláss fyrir nýja dótið.

Frábær jeppi til að byrja í sportinu, nýskoðaður, nýlega smurður og tilbúin á fjall á fáránlegu verði.

Re: TS Jeep Cherokee 36" '91

Posted: 19.mar 2013, 09:13
frá Doror
Myndir innan úr bílnum:
Image
Image

Re: TS Jeep Cherokee 36" '91

Posted: 20.mar 2013, 09:20
frá Doror
Ennþá til, mikill áhugi á skiptum og ég skoða það vissulega en er aðalega að leita að staðgreiðslu.

Re: TS Jeep Cherokee 36" '91

Posted: 20.mar 2013, 22:05
frá Doror
Stutt í páska og flott færi.

Re: TS Jeep Cherokee 36" '91

Posted: 22.mar 2013, 19:02
frá Doror
Þessi er seldur.