Síða 1 af 1

TS. Nissan Patrol 44" '98 SELDUR!!

Posted: 23.okt 2012, 22:14
frá JoiVidd
Er með '98 Patrol sem er á 44"(en að mestu leiti 46" breyttur) hann er ekinn 216þ. og er með 2.8 6cyl. dísel vélinni. Það er í honum stillanlegur hopa tölvukubbur og hann vinnur mjöög vel (sprækasti patrol sem ég hef keyrt) Hann er líka með 3" púst. Hann á ekki við nein hitavandamál að stríða sama hvað maður bíður honum enda var farið í mótor í mars 2011 og sett var á hann nýtt hedd ma. og til eru nótur fyrir því. Hann er á þokkalegum 44" DC dekkjum og 17" breyðum stálfelgum, fylgir 44" DC varadekk á eins felgu og er undir bíllum!
Bíllinn lítur vel út og er drullu flottur! fær athygli víða. Það er 7 manna leðurinnrétting í honum með rafmagn í sætum og það virkar allt. Svo er búið að koma snyrtilega fyrir takkaborði (setti nokkra umfram með það í huga að hægt væri að nota þá fyrir kastara/vinnuljós eða eitthvað sniðugt..) og loftmæli fyrir kútinn í innréttinguna en hann er heill og góður að innan sem utan.
Það var í honum lowgír svo það er búið að breyta gírkassabitanum og lengja í lögnum ef menn vilja setja svoleiðis aftur í hann, en mér fannst hann ekki skemmtilegur með honum, missti afl í gegnum hann og hækkaði eyðslu og hafði sárasjaldan not fyrir hann..


Helsti aukabúnaður er ma.:
5:42 hlutföll
- ARB loftlásar að framan OG aftan(ekki orginal)
- Loftdæla með loftkerfi
- Stýristjakkur og dempari
- Tölvukubbur og 3" púst
- Boost- og afgashitamælir
- Prófílbeisli að framan og aftan
- Búið að breyta spindilhalla í orginal
- Hásingafærsla fyrir 46" ( 4cm. fram að framan og 13cm aftur að aftan minnir mig)
- Hækkaður um 16cm
- 46" kantar af nýjasta bodýinu (nýir)
- Álkassi á afturhlera með skóflu og drullutjakkafestingu
- VHF talstöð með 4x4 stöðvunum
og alveg pottþétt eitthvað sem ég er að gleyma!

Ég fór með bílinn í skoðun í þessari viku og hann stóðst hana án ath.

Það á eftir að "klára" eitthvað smotterí en það er samningaratriði bara.. ekkert stórvægilegt!

ásett verð á svona bíl er um 2.4 en ég er ekki að gera mér vonir um að fá það svo það er um að gera að bjóða bara, maður er til alls líklegur ef menn eru með pening en ég er opin fyrir einhverju í skiptum ef vit er í því! En verðið er ekki heilagt

Langar helst í BMW Dísel dýrari eða á svipuðu verði Helst bmw E60 530D

Allar frekari upplýsingar í síma 6622052 - Jóhann

Image

Image

Image

Image

Image

Re: TS. Nissan Patrol 44" '98 FLOTTUR!!

Posted: 24.okt 2012, 16:09
frá JoiVidd
Fæst á góðu stgr. verði!

Re: TS. Nissan Patrol 44" '98 FLOTTUR!!

Posted: 26.okt 2012, 10:00
frá JoiVidd
upp

Re: TS. Nissan Patrol 44" '98 FLOTTUR!!

Posted: 26.okt 2012, 21:03
frá Brjótur
Jaha bara brandara kall hahah missti afl ut af milligirnum ?? jaha :) alltaf heyrir maður eitthvað nytt

Re: TS. Nissan Patrol 44" '98 FLOTTUR!!

Posted: 27.okt 2012, 12:23
frá JoiVidd
Hefuru td. Mælt eydslu fyrir og eftir? Svo ju, eg fann mun a aflinu... Mer fanst þetta allavega ekki þess virði, eg notaði þetta heldur aldrei. En ef þu vilt ræða þetta frekar þa eru einkaskilaboðin til þess;) verum ekki að fylla sōluþraðin með þessu

Re: TS. Nissan Patrol 44" '98 FLOTTUR!!

Posted: 27.okt 2012, 12:51
frá jeepson
Er ekki lógírinn til sölu?

Re: TS. Nissan Patrol 44" '98 FLOTTUR!!

Posted: 27.okt 2012, 20:06
frá JoiVidd
Nei hann er seldur

Re: TS. Nissan Patrol 44" '98 FLOTTUR!!

Posted: 27.okt 2012, 20:11
frá Hfsd037
Svo er líka leiðinda væl og hávaði frá lóggírnum

Re: TS. Nissan Patrol 44" '98 FLOTTUR!!

Posted: 27.okt 2012, 22:28
frá Freyr
Flottur Patrol, skemmtileg litasamsetning og svo gera nýju kantarnir ótrúlega mikið fyrir útlitið á þeim.

Re: TS. Nissan Patrol 44" '98 FLOTTUR!!

Posted: 29.okt 2012, 19:13
frá JoiVidd
Skoða ýmis skipti en helst a pening

Re: TS. Nissan Patrol 44" '98 FLOTTUR!!

Posted: 30.okt 2012, 18:45
frá JoiVidd
Upp

Re: TS. Nissan Patrol 44" '98 FLOTTUR!!

Posted: 30.okt 2012, 23:11
frá Fetzer
geðveikur þessi!

Re: TS. Nissan Patrol 44" '98 SELDUR!!

Posted: 05.nóv 2012, 00:23
frá JoiVidd
Bíllinn er seldur