Bíllinn lítur vel út og er drullu flottur! fær athygli víða. Það er 7 manna leðurinnrétting í honum með rafmagn í sætum og það virkar allt. Svo er búið að koma snyrtilega fyrir takkaborði (setti nokkra umfram með það í huga að hægt væri að nota þá fyrir kastara/vinnuljós eða eitthvað sniðugt..) og loftmæli fyrir kútinn í innréttinguna en hann er heill og góður að innan sem utan.
Það var í honum lowgír svo það er búið að breyta gírkassabitanum og lengja í lögnum ef menn vilja setja svoleiðis aftur í hann, en mér fannst hann ekki skemmtilegur með honum, missti afl í gegnum hann og hækkaði eyðslu og hafði sárasjaldan not fyrir hann..
Helsti aukabúnaður er ma.:
5:42 hlutföll
- ARB loftlásar að framan OG aftan(ekki orginal)
- Loftdæla með loftkerfi
- Stýristjakkur og dempari
- Tölvukubbur og 3" púst
- Boost- og afgashitamælir
- Prófílbeisli að framan og aftan
- Búið að breyta spindilhalla í orginal
- Hásingafærsla fyrir 46" ( 4cm. fram að framan og 13cm aftur að aftan minnir mig)
- Hækkaður um 16cm
- 46" kantar af nýjasta bodýinu (nýir)
- Álkassi á afturhlera með skóflu og drullutjakkafestingu
- VHF talstöð með 4x4 stöðvunum
og alveg pottþétt eitthvað sem ég er að gleyma!
Ég fór með bílinn í skoðun í þessari viku og hann stóðst hana án ath.
Það á eftir að "klára" eitthvað smotterí en það er samningaratriði bara.. ekkert stórvægilegt!
ásett verð á svona bíl er um 2.4 en ég er ekki að gera mér vonir um að fá það svo það er um að gera að bjóða bara, maður er til alls líklegur ef menn eru með pening en ég er opin fyrir einhverju í skiptum ef vit er í því! En verðið er ekki heilagt
Langar helst í BMW Dísel dýrari eða á svipuðu verði Helst bmw E60 530D
Allar frekari upplýsingar í síma 6622052 - Jóhann




