Síða 1 af 1

Patrol 38"

Posted: 11.okt 2012, 21:13
frá jsk
Til sölu Nissan Patrol SE+ árg. 1999
Ekinn 191 þús.
Vél: 2.8 6cyl disel m/turbo og intercooler.
Beinskiptur
7- manna, leðursæti, sóllúga, rafmang og hiti í sætum, útvarp/cd. 6 hátalarar

38" breyting (stærri breyting, meira klippt út og breiðari kantar)
Lækkuð drifhlutföll
Læsing í afturdrifi
Ljóskastarar í stuðara og tveggja geisla kastarar í grind
Krómuð kastaragrind
Langbogar, þverbogar og skíðaklemmur
Gluggavindhlífar og húddhlíf.
3“ púst
Tölvukubbur með on/off rofa í mælaborði
Geymslukassi á afturhurð m/festingum fyrir drullutjakk, skóflu og járnkall.
Loftnet og lagnir fyrir, CB og VHF
Útlit og ástand mjög gott.
Ný búið að skipta um olíur á öllu.
Tveir dekkjagangar, annarsvegar mjög slitin AT450 dekk á 14“ breiðum stálfelgum og hinsvegar nánst ný (ekin c.a. 5000 km) AT450 dekk á 15,5“ breiðum stálfelgum. Tveir ventlar og kranar í öllum felgum.
Bifreiðin hefur fengið gott viðhald og á síðustu 10 þús km. Er búið að taka upp gírkassa (legur), skipta um kúplingu og svinghjól. Skipta um tímareim ásamt tilheyrandi o.fl.
Verðhugmynd: 1.890.000,- en annars er bara að prufa að bjóða.
Upplýsingar 840 7911 og jsk@kraftbilar.is

DSCN0808_resize.JPG
Mynd

007_resize.JPG

DSCN0809_resize.JPG

Re: Patrol 38"

Posted: 16.okt 2012, 19:46
frá jsk
ttt...

VHF stöð fylgir með.

Re: Patrol 38"

Posted: 17.okt 2012, 17:40
frá fillinnpedo
Smá svona offtopic, finnurðu einhvern mun með þessum tölvukubb? hvað á hann að vera að gefa mikið í togi og hestöflum? hvað fær maður svona kubb?

Re: Patrol 38"

Posted: 17.okt 2012, 18:24
frá jsk
Það er greinilegur munur á bílnum þegar kubburinn er virkur, sérstaklega togar hann meira á miðlungssnúningi. Þessi kubbur var í bílnum þegar ég fékk hann, hef ekki hugmynd um hvað hann á að bæta við í hestöflum eða togi, eða hvar er hægt að kaupa svona.

Re: Patrol 38"

Posted: 20.nóv 2012, 22:41
frá kubburnr1
væriru til í skipti á þessum??? http://f4x4.is/index.php?option=com_jfu ... 23&t=33739

Re: Patrol 38"

Posted: 21.nóv 2012, 09:36
frá MorgunBronco
Ertu til í á skoða skipti á Hondu VTX 1800 árg 2003 plús milligjöf?

Re: Patrol 38"

Posted: 04.des 2012, 19:31
frá jsk
Þessi góði Patrol er enn til sölu.

Varðandi skipti þá gæti ég hugsað mér að taka ódýran fólksbíl eða götuskráð enduróhjól.

Re: Patrol 38"

Posted: 04.des 2012, 20:11
frá bigblock
sælir skoðaru skifti á skoda octavia 2005 og grand cherokee 2001
kv Elvar

Re: Patrol 38"

Posted: 05.des 2012, 09:02
frá jsk
Get ekki tekið tvo bíla uppí, mætti skoða þetta með Skoda

Re: Patrol 38"

Posted: 08.des 2012, 10:29
frá jsk
ttt

Fékk nýjan rafgeymi í síðustu viku.

Re: Patrol 38"

Posted: 13.des 2012, 13:56
frá jsk
ttt

Re: Patrol 38"

Posted: 15.des 2012, 23:37
frá bigblock
sendu mér myndir á renniverkst@simnet.is