Land Rover diskó 1 til sölu. Hann er '96 model og dísel á 38 tommu dekkjum, keyrður um 320 þúsund km. Hann lítur ágætlega út en er orðinn þreyttur að mörgu leyti og þarf að fara í skoðun.
Ég ætla ekkert að reyna að fegra ástandið á bílnum og hér eru helstu gallar í gripnum:
Það brotnaði löm í afturhlera um daginn, víbringur í drifskafti, brennir aðeins olíu enda mikið keyrður, það vantar í hann snúningstengið í stýrið þannig flautan er úti, loftpúðaljós logar í mælaborði, dekkin eru orðin slitin og þreytt og halda illa lofti, eitthvað sambandsleysi í mælaborði þannig að hraða- og snúningsmælir dettur stundum út, geymir er ekkert of góður en virkar þó alveg, háuljósin duttu út og þurrkumótor höktir.
En hann hefur líka ýmsa kosti: Hann er með 9000 punda spil, A/C dælu sem er notuð sem loftdæla, toppgrind, spottakassa, altarnator er 2 ára, kúpling er síðan í haust hann er með 4,7 drifhlutföll og er ekkert alslæmur fyrir einhvern sem nennir að hressa aðeins upp á hann. Tala nú ekki um fyrir einhvern sem á annan bíl í varahluti.
Hörkujeppi. Verð tilboð
síminn hjá mér er 6978424 og mailið er helgibjarnason@gmail.com
Landrover diskó 96model 38" dísel ! 430þús !
-
Höfundur þráðar - Innlegg: 15
- Skráður: 24.feb 2012, 13:17
- Fullt nafn: Helgi Bjarnason
- Bíltegund: Land Rover
Landrover diskó 96model 38" dísel ! 430þús !
Síðast breytt af helgibj þann 01.feb 2013, 19:19, breytt 1 sinni samtals.
-
Höfundur þráðar - Innlegg: 15
- Skráður: 24.feb 2012, 13:17
- Fullt nafn: Helgi Bjarnason
- Bíltegund: Land Rover
Re: Landrover diskó 96model 38" dísel !
Endilega bara bjóða ég móðgast ekkert :)
kv Helgi
kv Helgi
-
Höfundur þráðar - Innlegg: 15
- Skráður: 24.feb 2012, 13:17
- Fullt nafn: Helgi Bjarnason
- Bíltegund: Land Rover
Re: Landrover diskó 96model 38" dísel !
koma svo 490 þúsund staðgreitt ! það gerist varla ódýrara fyrir 38 tommu dísel jeppa með spili og loftdælu !
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur