Musso, dísel, 33", ssk., MJÖG HEILLEGUR, 450.000 kr


Höfundur þráðar
olafurdanielsson
Innlegg: 3
Skráður: 26.mar 2012, 20:40
Fullt nafn: Ólafur Daníelsson
Bíltegund: Kia Sorento

Musso, dísel, 33", ssk., MJÖG HEILLEGUR, 450.000 kr

Postfrá olafurdanielsson » 16.apr 2012, 22:40

Ég er að selja bíl sem ég tók uppí annan bíl sem ég var að selja!
Uppl. hér að neðan eru því að mestu frá fyrri eiganda, því sjálfur þekki ég bílinn ekki mikið, nema að ég var ekki fyrir vonbrigðum þegar ég sá og keyrði bílinn (og ákv. því að taka hann uppí minn). Vegna þessa hef ég ákv. að reyna að selja hann sem hraðast áfram, en ásett verð á þessa bíla er frá 600-800þús.

Þetta er s.s. fínn dísel jeppi, og skilst mér að þeir eyði aðeins um 11 L/100 km.
Um er að ræða mjög heillegan Musso á 33" dekkjum. Bíllinn er árg. 99 og er ekinn 245þús km. Bíllinn er mjög rúmgóður og með krók (mikil dráttargeta).

Skv. fyrri eiganda er bílinn í góðu lagi og hefur verið vel viðhaldið. Á síðasta ári hefur verið skipt um allt í bremsum að framan og aftan, sem og allt í handbremsunni. Bremsuklossar að aftan eru splunkunýir. Gormar og demparar að aftan eru frá í haust sem og demparar að framan. Skipt var um altenator fyrir jólin. Allar hjólalegur eru nýlegar.
Bílinn er ekkert skemmdur, fyrir utan Hagkaupsbeyglur. Það eina sem hægt er að segja að sé slitið er bílstjórasætið.

Eins og ég segi þá varð ég ekki fyrir vonbrigðum þegar ég sá bílinn og prufukeyrði hann.

Ég get sent fullt af myndum.
Selt á 450þús.

Ólafur
s. 6656168
olafurdanielsson@gmail.com
Viðhengi
DSCF7772-M.jpg




Höfundur þráðar
olafurdanielsson
Innlegg: 3
Skráður: 26.mar 2012, 20:40
Fullt nafn: Ólafur Daníelsson
Bíltegund: Kia Sorento

Re: Musso, dísel, 33", ssk., MJÖG HEILLEGUR, 450.000 kr

Postfrá olafurdanielsson » 19.apr 2012, 11:56

Er kominn með tvö tilboð upp á 300þús. Býður enginn 350 þús ?
Læt hann fara á 350þús um helgina.


þorleifur
Innlegg: 120
Skráður: 06.okt 2011, 12:00
Fullt nafn: þorleifur haukur sigurðsson

Re: Musso, dísel, 33", ssk., MJÖG HEILLEGUR, 450.000 kr

Postfrá þorleifur » 24.apr 2012, 16:34

ertu til í skipti á vw passat 1998 ekinn205þús


stonie m
Innlegg: 19
Skráður: 05.jún 2012, 13:07
Fullt nafn: Steini Fannberg
Bíltegund: Allskonar

Re: Musso, dísel, 33", ssk., MJÖG HEILLEGUR, 450.000 kr

Postfrá stonie m » 05.jún 2012, 14:32

ertu til í skipti á þessum
http://www.netbilar.is/CarDetails.aspx? ... &schpage=1

Kv Steini


Til baka á “Jeppar”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur