Sælir félagar.
Er með Terrano 2 til sölu, dísel , keyrður 246 þús. Leður , topplúga og lítur bara þokkalega út að innan.
Fjarskafallegur að utan. Er með slöpp frambretti , sílsar orðnir lélegir og boddífestingar að framan búnar. Er með endurskoðun sem að rann út 31. des og var sett út á parkljósaperu að framan , gat á pústi , bremsar lítið að aftan , handbremsan vinstra meginn og svo sílsar og boddífestingar.
Er 33" breyttur á þreyttum dekkjum á álfelgum.
Tilvalið eintak fyrir laghenta með aðstöðu til framkvæmda eða sem varahlutabíll.
Er ekki með myndir en er staðsettur í Hafnarf. ef menn vilja kíkja á gripinn.
Óska eftir tilboðum.
Kv. Konráð Þór.
TS: Nissan Terrano 2 '98 , dísel. 33"
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur