Síða 1 af 1

Vélaskipti Krúser 70/ Hilux disel.

Posted: 19.mar 2012, 13:57
frá arnivald
Sælir hér reynsluboltar. Ég hefi hug á að setja 2,4l diselvél úr Hilux árg. 90 í Krúser 70 bensín 2,36l. árg. 87.
Hafa menn hér reynslu af slíku, og eru einhv. vandamál fyrirsjánleg? Passa td. kúpplingshús á milli véla eða verður það að fylgja, og passar það á gírkassann í Krúsernum? osfr.

Re: Vélaskipti Krúser 70/ Hilux disel.

Posted: 19.mar 2012, 19:00
frá siggisigþórs
sparaðu þér ómakið þú gætir alveg eins sett reiðhjólapetala í gólfið.annars minnir mig að startarinn sé vitlausu meginn þanig að þetta gæti verið einhvað vandamál kveðja siggi

Re: Vélaskipti Krúser 70/ Hilux disel.

Posted: 19.mar 2012, 20:10
frá -Hjalti-
Það er réttarasagt allt öfugumegin miðavið bensin vélina

Re: Vélaskipti Krúser 70/ Hilux disel.

Posted: 19.mar 2012, 21:06
frá StefánDal
Þetta er samt lítið mál. Diesel vélin passar í sömu festingar en þú þarft kúplingshúsið af diesel vélini. Restin er smá föndur :)

Re: Vélaskipti Krúser 70/ Hilux disel.

Posted: 20.mar 2012, 10:00
frá arnivald
Takk fyrir þetta.
Það er huggun að vita að kúplingshúsið og mótorfestingarnar passa. Þá er eftir raflögn að alternator og startara,
þvera púströr framanvið gírkassabitann, sem og tengja vatnskassa og miðstöð. Föndur.
Þá er ein spurning sleppur olíupannan? Mér sýnist olíubeðan á bensínvélinni vera nettari að neðan en á díselvélinni.
Spurning um rými fyrir drifkúluna? Kannast menn við þetta atriði?