Síða 1 af 1

hilux 2.4 bensín

Posted: 16.mar 2012, 21:33
frá redneck
Þar sem ég er tiltölulega nýr í þessu sporti langar mig að fá reynslusögur af 2.4 bensín hilux, er búinn að finna mér þokkalegan 38'' breyttan hilux xtracab X/C SR-5I 2.4 bensín sem er keyrður 214 þús, km, og þætti mer gaman að fá reynslusögur af þessum bílum, hvaða staði á helst að skoða og svo framvegis

Re: hilux 2.4 bensín

Posted: 16.mar 2012, 22:38
frá dazy crazy
skoðaðu bensínstöðvarnar vel og leggðu á minnið hvar þær eru, þá ættirðu að vera nokkuð góður...

Annars án gríns þá skaltu skoða vel hvort það sé mikil drulla á spjaldinu í "throttle bodyiinu" veit ekki hvað það heitir á íslensku, það vill safnast drulla aftan á það, getur séð það með því að taka sogrörið frá og snúa gjöfinni. Algengt er að gjöfin sé stíf í efstu stöðu ef mikil drulla er á spjaldinu. Þetta er hægt að hreinsa með Seafoam held ég eða taka þetta bara allt úr og hreinsa með wd 40 eða eitthvað. Á móti inngjafarstykkinu er skynjari sem á stendur "throttle sensor" og hann þarf að vera rétt stilltur, skoðaðu hvort loftflæðiskynjarinn sé ekki örugglega liðugur. Ef bíllinn gengur eðlilega og er bara að eyða um 13-14 þá ætti hann að vera alveg í lagi. Þetta á bara við um 22re, 22r er með blöndung.

Man ekki meir, sem þarf eitthvað frekar að skoða við bensínbílinn frekar en dísilinn.

Endilega leiðrétta mig ef ég er ekki að segja eitthvað sem er rétt. Er með 22re og þetta er svona það sem ég er búinn að komast að, þarf að gera þetta við minn.

Re: hilux 2.4 bensín

Posted: 20.mar 2012, 23:56
frá Hrannifox
tímakeðjuna, strekkjara sleða og skoða ástandið á þessu, þessar vélar vildu öft ganga á þessu haug
slitnu. kostaði 50 þús niðri toyota þá með öllu nákvæmlega öllu.


þetta með eyðsluna ætla ekkert að segja til um á 38'' minn bara á 31'' og er ekkert að eyða meira
en rollan hérna á heimilinu

Re: hilux 2.4 bensín

Posted: 21.mar 2012, 07:42
frá draugsii
Það er einföld tímakjeðja í þeim og sleðarnir eru úr plasti svo þó að keðjan hangi í yfir 200 þús þá þarf að skifta um þessa sleða í um 100 þús þeir brotna og fara niður í bottnpönnu og geta stíflað grófsigtið. Lenti í þessu á mínum og það kostaði mig ónýta stangarlegu annars eru þetta bara ágætis mótorar

Re: hilux 2.4 bensín

Posted: 20.feb 2013, 10:42
frá LFS
ætla að troða mer inna þennan þrað herna oþarfi að bua til annan en hvað eru þessar vélar að eyða eru þær á svipuðu reki og diesel velinn ? einnig þola þær turbinu ef maður hefði litið boost 7psi eða einhvað slikt og passar 2 lt framan á bensingirkassan ?