Síða 4 af 7

Re: Toyota Hilux mengaður með Nissan TD27eti

Posted: 10.jún 2012, 19:26
frá jeepson
Elli. Ein spurning útí loftið. Veistu hvort að sn mælirinn sé réttur?? Hefuru tök á að fá lánaðan stakan snúningsmælir til að tengja á vélina og prufa. Ég man að það var altaf hægt að fá mæla sem voru með taka aftan á til að stilla fyrir 4,6 og 8cyl vélar. En ég hef aldrei pælt í því hvort að þessir mælar séu bæði fyrir bensín og diesel vélar.. En það gæti kanski verið hugmynd að prufa að setja svona utaná liggjandi mælir við og sjá hvað hann segir.. Ég átti einusinni cherokee XJ sem hafði upprunalega verið diesel bíll. Þegar ég keypti hann var búið að setja 4l línu sexu í hann. sn mælirinn fór aldrei upp fyrir 250sn í botni.

Re: Toyota Hilux mengaður með Nissan TD27eti

Posted: 10.jún 2012, 20:37
frá ellisnorra
Samkvæmt áræðanlegum upplýsingum á allt að vera beint í gegn í 4 háa, en það er ágæt hugmynd að gera beina athugun á þessu eins og þú bendir á Þorri.

En það sem þú ert að tala um Gísli er fyrir bensínbíla og tengt við mínus pól á háspennukeflinu. Þessir mælar telja púlsana sem háspennukeflið fær og deilir svo í 4, 6 eða 8 eftir cylindrafjölda.
Til eru ýmsar gerðir af aftermarket snúningshraðamælum, til dæmis sem horfir á damperinn og önnur gerð sem klemmir sig á spíssarör og nær einhvernvegin að telja olíupúlsana sem í gegnum rörið fara. Það er athugandi að verða sér út um svoleiðis mæla, eða fá svoleiðis lánaða til að gera snögga samanburðarmælingu.

Re: Toyota Hilux mengaður með Nissan TD27eti

Posted: 10.jún 2012, 20:58
frá Freyr
Millikassinn í 2,8 Nissan Patrol (a.m.k. Y60) er með hlutfallið 1:1,297

Kveðja, Freyr

Re: Toyota Hilux mengaður með Nissan TD27eti

Posted: 10.jún 2012, 21:00
frá Freyr
Hinsvegar er millikassinn úr 4,2 BENSÍN patrol með 1:1 í háa, þekki ekki hvernig það er í 4,2 diesel.

Re: Toyota Hilux mengaður með Nissan TD27eti

Posted: 10.jún 2012, 21:30
frá Startarinn
Freyr wrote:Millikassinn í 2,8 Nissan Patrol (a.m.k. Y60) er með hlutfallið 1:1,297

Kveðja, Freyr

Er skýringin ekki kominn hérna, passar nokkurnvegin víð útreikningana sem ég setti inn

Re: Toyota Hilux mengaður með Nissan TD27eti

Posted: 10.jún 2012, 22:09
frá ellisnorra
Freyr wrote:Millikassinn í 2,8 Nissan Patrol (a.m.k. Y60) er með hlutfallið 1:1,297

Kveðja, Freyr

Þá væri snúningurinn á 100km hraða 3602rpm, miðað við umrædda reiknivél.

Hvaðan hefuru þessar upplýsingar Freyr? Tölur á netinu eða persónuleg reynsla?

Ég er spenntur að komast í að snúa og skoða, en það er ekki fyrr en á miðvikudaginn sem ég kemst í það.

Re: Toyota Hilux mengaður með Nissan TD27eti

Posted: 10.jún 2012, 23:10
frá Freyr
Úr bókinni "Jeppar á fjöllum" útg. 1994. Aftast í henni er yfirlit yfir þá jeppa sem voru í boði hérlendis á þessum tíma og með hverjum jeppa fylgja ýmsar upplýsingar, m.a. gírhlutföll. Ég hef ekki rifið svona kassa svo ég get ekki staðfest þessar upplýsingar.

Kv. Freyr

Re: Toyota Hilux mengaður með Nissan TD27eti

Posted: 10.jún 2012, 23:46
frá jeepcj7
Ég veit ekki betur en millikasssinn í Y60 sé beinn í gegn í háa 1-1 og 1-2.02 í lága og það er til 5 gíra kassi td. bens sem er með 5 beinan í gegn en ekki 4.
Aftur á móti er gamli patrol fjaðrabíllinn með háa drifið niðurtekið ca. 1-1.2

Re: Toyota Hilux mengaður með Nissan TD27eti

Posted: 11.jún 2012, 11:12
frá ellisnorra
Ég talaði líka við umboðið núna rétt í þessu og þar var sérfræðingur sem sagði að y60 boddyið væri bara með beint í gegnum millikassann í háa.

Mig er farið að gruna að það geti ekki verið neitt annað en snúningshraðamælarnir séu eitthvað að plata mig, allur þessi samanburður hjá mér er byggður á þeim. Þetta eru original snúningshraðamælar, annarsvegar úr 70 krúser sem var original við þann 70 krúser mótor sem var í bílnum, bara mixaður í mælaborðið hjá mér og hinsvegar original samstæður snúningshraðamælir úr terrano.
Það er hinsvegar pottþétt að mótorinn er á of miklum snúning núna, það heyri ég vel.
Eftir meiri spekuleringar þá ætla ég líka að halda gírkassanum og lækka drifin, annaðhvort í 4.56 eða 4.30. Patrolinn er með svo hellings lægri 1. og 2. gír heldur en w56 og terrano kassinn að það verður fínt að hafa hann á háum drifum með þessa gíra.
Ég á eins og áður hefur komið fram 4.30 köggul sem ég skelli í við tækifæri til prufu. Mér sýnist hinsvegar ekki vera hægt að fá reverse drif fyrir 4.30 þannig að ef það verður ofaná þá þarf ég að fara í framhásingabreytingar ofaná alltsaman :) Það hefur svosem ákveðna kosti líka, þá get ég tekið 1.5cm kubbana úr aftur sem ég setti til að minnka samsláttinn. Framdrifsflánsinn og kúplingsþrællinn eru nefnilega nánir nágrannar... og með low pinion drifi er það alveg hæfilegt. Styrkurinn er fjandans nógur í low pinion drifi á 35" með 4.30 drifi

Re: Toyota Hilux mengaður með Nissan TD27eti

Posted: 11.jún 2012, 13:28
frá AgnarBen
jeepcj7 wrote:Ég veit ekki betur en millikasssinn í Y60 sé beinn í gegn í háa 1-1 og 1-2.02 í lága og það er til 5 gíra kassi td. bens sem er með 5 beinan í gegn en ekki 4.
Aftur á móti er gamli patrol fjaðrabíllinn með háa drifið niðurtekið ca. 1-1.2

Þetta eru hárréttar tölur hjá Hrólfi, ég kannaði þetta á sínum tíma þegar ég átti einn af mínum Y60 Pöttum og mældi þetta bak til að finna út á hvaða hlutföllum sá bíll var á.

Re: Toyota Hilux mengaður með Nissan TD27eti

Posted: 14.jún 2012, 22:11
frá ellisnorra
Ég taldi það út í gær, 4. gír háa drif er 1:1 frá damper útí drifskaft. Og þrátt fyrir að vera fyrir 100% viss þá taldi ég hlutföllin út aftur og þau eru 4.88 for sure.

Re: Toyota Hilux mengaður með Nissan TD27eti

Posted: 16.júl 2012, 13:28
frá ellisnorra
Núna er komin töluverð reynsla á þetta combo mitt (2300km) og ég er að mestu leiti himinlifandi. Aflið er alveg djöfull gott, með 2.5" pústi er hann mjög léttur í sporunum. Togið er alveg geggjað, hann bara heldur áfram endalaust upp brekkur! Í minni sveit er ein þokkaleg brekka, fyrir staðkunnuga þá er ég að tala um að keyra upp Kolbeinsrófu í norðurátt. Fyrsta brekkan frá Reykholti þegar keyrt er í áttina að Húsafelli. Þar togar hann sig úr 50km hraða í gegnum Reykholt og uppí 110km hraða efst í brekkunni. Framúrakstur er ekki lengur vandamál á þessum hilux :) Og ég er ennþá á gömlum steinolíubirgðum!

Það eru samt tvö atriði sem ég er ekki sáttur við. Bæði er einhverskonar bilun. Glóðakertahitarinn í tölvunni virkar ekki. Það er mjög einfalt, einn vír út úr tölvunni fyrir glóðakertaljós í mælaborði og einn vír sem gefur mínus á glóðakertarelay. Þessi búnaður virkar bara ekki hjá mér. Þegar hann er kaldur þá kemur ljós í mælaborði í ca 1 sec en ekkert gerist í relayinu. Ég er núna með auka rofa inní bíl til að hita glóðakertin. Virkar svosem, en er ekki til frambúðar eða eftirbreytni þar sem ég vill hafa þetta allt 100%.
Hitt er að olíugjöfin er biluð. Það er rafstýrð olíugjöf og stilliviðnám sem er í ólagi. Bíllinn er nothæfur svona en stundum er hann leiðinlegur á lágum snúningi í keyrslu, á það til að rykkja eins og lc60 turbo eigendur þekkja en fínn í þjóðvegakeyrslu. Stundum dettur hann líka niður á einhverskonar safe-mode, þá verður hann ca 50 hestöfl og þá er bara að svissa af, telja ca uppá 10 og svissa aftur á og þá lagast það oftast :)
Þetta eru atriði sem ég á eftir að laga en sökum mikilla anna undanfarið (sem endaði á því að ég gifti mig síðastliðinn laugardag) þá hef ég ekki haft tíma til að laga þetta, enda svosem ekkert áríðandi þannig lagað :)

En ég mæli eindregið með þessari framkvæmd ef einhver er að hugsa um að veiða fleiri hesta í hilux húddið hjá sér. Eyðslan er alveg skapleg eða milli 11 og 12 lítrar með mínu aksturslagi á 100% steinolíu.
Í dag er bíllinn á 4.30 hlutföllum og 33" sumardekkjum (35" fer undir í vetur). Ég var líka að eignast loftlæsingar og fara þær í á næstu vikum eða mánuðum. Bíllinn er því að verða alveg helgóður.

Re: Toyota Hilux mengaður með Nissan TD27eti

Posted: 16.júl 2012, 14:18
frá íbbi
hvernig er með öryggið fyrir glóðakertin?

hegðaði sér alveg eins hjá mér og það var öryggið í boxinu sem er inní bíl. 15amp

Re: Toyota Hilux mengaður með Nissan TD27eti

Posted: 16.júl 2012, 20:29
frá ellisnorra
íbbi wrote:hvernig er með öryggið fyrir glóðakertin?

hegðaði sér alveg eins hjá mér og það var öryggið í boxinu sem er inní bíl. 15amp

Þar sem að þetta er alltsaman custom made þá er ekkert svoleiðins öryggi sérstakt. Það er hinsvegar öryggi fyrir glóðakertin í húddinu, og það er í lagi, enda virkar hitunin þegar ég overrida mínus skotið frá ECU tölvunni með mínus í gegnum rofa.

Re: Toyota Hilux mengaður með Nissan TD27eti

Posted: 16.júl 2012, 21:18
frá Startarinn
Elli, ef þú skoðar rafkerfisteikninguna sem ég býst við að þú hafir yfir terrano vélarheilann, er þá sami plús inná relayið í gegnum vélatölvuna og plúsinn sem þú notar?
Það getur verið að þeir leiði ekki á milli hvors annars, þessvegna virkar relayið með mínus frá boddýi/rafgeymi en ekki mínus frá vélartölvu

Ég lenti í svipuðum vandræðum með AFR mæli sem ég setti við 3vze vélina, ég fékk hann ekki til að gefa rétt merki inná heilann, þar sem ég þorði ekki að tengja AFR stýringuna inná sama plúsinn þar sem hann var gegnum vélarheilann, ég tók ekki áhættuna á að steikja hann.
Ég leysti vandamálið með því að stilla loftflæðineman þar til ég fékk AFR gildið sem ég vildi

Re: Toyota Hilux mengaður með Nissan TD27eti

Posted: 16.júl 2012, 21:46
frá ellisnorra
Teikning í viðhengi fyrir þá sem hafa gaman af að spekulera :)
Ég er með þetta tengt alveg eins. Plús á relay í gegnum öryggi.
Gott gisk samt Ástmar :) Mjög gaman af áhuga þínum á þessu projecti mínu. Ég tók mig líka til og skoðaði fb myndirnar þínar og þar eru tilkomumikil verkefni :)

Re: Toyota Hilux mengaður með Nissan TD27eti

Posted: 17.júl 2012, 00:47
frá Startarinn
elliofur wrote:Ég tók mig líka til og skoðaði fb myndirnar þínar og þar eru tilkomumikil verkefni :)

Takk fyrir það Elli

Þessi teikning gefur ekki mikið rými fyrir mistök, hvaða hitanema ertu með á vélinni? Toyota eða nissan?
Eina sem mér dettur í hug að viðnámið sé ekki það sama og rugli tölvuna, þ.e. það gefi merki sem tölvan skilur sem meiri hita, en svo er alltaf möguleiki að þessi rás sé einfaldlega biluð í vélarheilanum

Re: Toyota Hilux mengaður með Nissan TD27eti

Posted: 17.júl 2012, 09:49
frá ellisnorra
Það eru þrír (reyndar 4 núna) hitanemar á þessari vél. Tveir í vatnslás-húsinu, annar sem ECU tölvan les af og hinn fyrir nissan mælaborðið sem nú er aflagður. Ég bætti við toyota hitanema á lögnina úr vatnslás-húsinu og í vatnskassann. Það eru sitthvorar gengjurnar og sitthvor stærðin á þessum hitamælum. Svo er einn hitamælir í olíuverkinu fyrir hráolíuhita hefur mér sýnst á teikningum.

Re: Toyota Hilux mengaður með Nissan TD27eti

Posted: 08.aug 2012, 22:47
frá ellisnorra
Í dag skipti ég um rafmagnsskynjarann á olíugjöfinni og núna er bíllinn allt annar, hættur þessu helvítis hökti þegar maður er að reyna að fara hægt.
Ég tengdi líka loftkerfið, (setti kútinn undir) því fyrir liggur að skreppa á Arnarvatnsheiði um helgina :)

Re: Toyota Hilux mengaður með Nissan TD27eti

Posted: 19.nóv 2012, 12:53
frá villi58
Af hverju sjást myndirnar ekki lengur ?

Re: Toyota Hilux mengaður með Nissan TD27eti

Posted: 19.nóv 2012, 13:42
frá ellisnorra
Ég lét facebook hýsa þær en þeir eru greinilega búnir að breyta einhverju. Ég á eftir að dunda mér við að laga þetta. Vonandi fljótlega :)

Re: Toyota Hilux mengaður með Nissan TD27eti

Posted: 19.nóv 2012, 20:09
frá ellisnorra
Ég er að dunda mér við að laga myndirnar.

Það er að frétta hérna að það er að koma í ljós að í frostinu er ekki nóg að hafa einn geymi eins og ég hef alltaf verið með í þessum bíl. Þessi geymir er reyndar orðinn 3 ára gamall en í dag breytti ég intercooler lögninni vinstra megin til að gera bætt öðrum geymi þar fljótlega. Loftsystemið er bara fyrir núna en ég er búinn að spotta stað sem það getur verið á og þá er nóg pláss fyrir geymi, um það bil síðasta plássið í húddinu :)

Annars er ég búinn að keyra á sjöunda þúsund km og feiki sáttur, fyrir utan að ég á eftir að skipta um drif og setja 4.30 í hann, en ég bráðabirgðaleysti það, eða gerði það allavega skárra að vera á 4.88, með því að setja bara stærri dekk :) Er búinn að vera á 35" núna í sumar og vetrardekkin eru líka 35". En ég er ennþá á tæpum 3000 snúningum í 100km hraða.

Re: Toyota Hilux mengaður með Nissan TD27eti

Posted: 19.nóv 2012, 21:50
frá jeepson
Hefur þú eitthvað mælt hvað hann er að eyða á hundraðið með 2,7 vélinni?

Re: Toyota Hilux mengaður með Nissan TD27eti

Posted: 19.nóv 2012, 22:00
frá ellisnorra
jeepson wrote:Hefur þú eitthvað mælt hvað hann er að eyða á hundraðið með 2,7 vélinni?

Hann er í tæpum 12 lìtrum og ég er ennþá à gömlum steinolìubirgðum :)
Ég var að var að vonast eftir minni eyðslu reyndar en þetta minnkar vonandi þegar ég skipti um drif

Re: Toyota Hilux mengaður með Nissan TD27eti

Posted: 19.nóv 2012, 22:03
frá jeepson
elliofur wrote:
jeepson wrote:Hefur þú eitthvað mælt hvað hann er að eyða á hundraðið með 2,7 vélinni?

Hann er í tæpum 12 lìtrum og ég er ennþá à gömlum steinolìubirgðum :)
Ég var að var að vonast eftir minni eyðslu reyndar en þetta minnkar vonandi þegar ég skipti um drif

Hvað er þessi vél að snúast ú sínu upprunalega hesthúsi?

Re: Toyota Hilux mengaður með Nissan TD27eti

Posted: 20.nóv 2012, 04:49
frá ellisnorra
jeepson wrote:
elliofur wrote:
jeepson wrote:Hefur þú eitthvað mælt hvað hann er að eyða á hundraðið með 2,7 vélinni?

Hann er í tæpum 12 lìtrum og ég er ennþá à gömlum steinolìubirgðum :)
Ég var að var að vonast eftir minni eyðslu reyndar en þetta minnkar vonandi þegar ég skipti um drif

Hvað er þessi vél að snúast ú sínu upprunalega hesthúsi?

Ég veit það ekki alveg nákæmlega, en félagi minn er með svona bíl á 33" á original drifum og mig minnir að hann sé á 2300 í 100 og sá bíll er að eyða 9-11 lítrum. Frændi minn á einn óbreyttan sem ég þarf bara að fá lánaðan hjá honum til að sjá hvað hann snýst.

En ég er búinn að laga myndirnar fyrir áhugasama.

Re: Toyota Hilux mengaður með Nissan TD27eti

Posted: 23.nóv 2012, 16:34
frá ellisnorra
Ég smellti öðrum rafgeymi í í dag, undanfarið hef ég aðeins tekið til í húddinu til að koma honum fyrir, færa loftsystemið og lagað til þarna bílstjóramegin.
Svona lítur húddið út í dag hjá mér :)

Image

Re: Toyota Hilux mengaður með Nissan TD27eti

Posted: 04.jan 2013, 20:07
frá Big Red
Hver er staðan á þessum er hann eitthvað farinn að berjast við snjó á fjöllum?

Re: Toyota Hilux mengaður með Nissan TD27eti

Posted: 05.jan 2013, 00:36
frá ellisnorra
Nei hann er nú lítið búinn að berjast við snjó, en komnir 6 þúsund km á þessum mótor og ég er feiki sáttur.
Eitt reyndar sem er farið að plaga mig núna, kannski að einhverjir kunni ráð við vanda mínum. Hann er nýfarinn að haga sér svona, og ég hef ekki gefið mér tíma ennþá til að kíkja neitt að ráði á þetta, mikið búið að vera að gera undanfarið og ég hef lítið þurft að nota bílinn.
Vandamálið er að hann fuelcuttar á gjöf, boostið fer í uþb 0.5 bar og þar cuttar hann með miklum rykkjum þangað til maður slakar á gjöfinni. Annars er hann venjulegur í akstri, eðlilegur gangur og flottur kraftur upp að 0.5bar og alveg hægt að keyra hann og halda umferðarhraða meðan maður passar bara gjöfina. Ekkert vélarljós kemur samhliða þessu.
Enginn boost skynjari er í honum þótt hann sé teiknaður eiga að vera þannig að tölvan hefur ekki hugmynd um hvað hann fær mikið boost, nema mögulega það sé reiknað út frá airflow sensornum.
Ég er búinn að athuga tengi framí húddi og sprauta í þau FinLube til að útiloka sambandsleysi þar, fleira hefur mér ekki dottið í hug.
Hráolíusía er nýleg, 6 þús km gömul og aldrei verið vandamál með rusl úr tanki. Ég hef ekki farið í sigtið sem mér skilst að sé í banjo boltanum í olíuinntakinu á verkinu, en það er á planinu næst þegar ég hef tíma.
Ég er búinn að lesa mig svolítið til um þetta í viðgerðardocumentum en ekki fundið neitt um svona bilun ennþá.
Gaman væri að fá spekuleringar hjá mönnum :)

Re: Toyota Hilux mengaður með Nissan TD27eti

Posted: 05.jan 2013, 20:12
frá ellisnorra
Getur þetta mögulega verið airflow skynjarinn að senda furðuleg boð? Eða hitanemar eða eitthvað vesen? Kannski sambandsleysi, samt er allt lóðað saman sem ekki er plöggað..

Re: Toyota Hilux mengaður með Nissan TD27eti

Posted: 05.jan 2013, 22:39
frá Startarinn
Mér datt helst í hug loftflæðiskynjari þegar þú lýstir þessu, en þar sem ég þekki þessar vélar ekki neitt var ég ekkert að ota því fram

Re: Toyota Hilux mengaður með Nissan TD27eti

Posted: 06.jan 2013, 00:27
frá jeepson
Er engin leið að mæla þessa skynjara? Svo er jafnvel smurning um hvort að þú getur fengið að prufa skynjarana í einhverjum terrano til að geta jafnvel útilokað þetta eitthvað.

Re: Toyota Hilux mengaður með Nissan TD27eti

Posted: 07.jan 2013, 20:21
frá ellisnorra
Aðgengi að zexel pörtum er ekki auðvelt, þannig lagað. Jújú þetta er til en allir þeir bílar sem ég hef kíkt í húddið á (fleiri en 5) til að skoða og bera saman þar er bosch kerfi :)

Re: Toyota Hilux mengaður með Nissan TD27eti

Posted: 09.jan 2013, 15:46
frá íbbi
ef þú ert að kíkja í húdd þá eru meiri líkur á að zyxel verkin séu í bílum með 00+ frontinn,

getur athugað með fremsta spíssa. þann sem er með kubbnum. bíllinn hjá mér lét öllum illum látum þegar hann fór.

Re: Toyota Hilux mengaður með Nissan TD27eti

Posted: 09.jan 2013, 16:35
frá ellisnorra
Nú spyr ég eins og kjáni, hvaða kubbur er það ?

Mig er reyndar svolítið farið að gruna að túrbínan sé eitthvað að stríða mér, það er líka dálítið meira blásurshljóð úr húddinu, en það útskýrir samt ekki beint fuel cuttið, þar sem það er engin tengin þar á milli (það er enginn boost sensor).

Re: Toyota Hilux mengaður með Nissan TD27eti

Posted: 09.jan 2013, 17:33
frá olei
elliofur wrote:[...]
Vandamálið er að hann fuelcuttar á gjöf, boostið fer í uþb 0.5 bar og þar cuttar hann með miklum rykkjum þangað til maður slakar á gjöfinni. Annars er hann venjulegur í akstri, eðlilegur gangur og flottur kraftur upp að 0.5bar og alveg hægt að keyra hann og halda umferðarhraða meðan maður passar bara gjöfina. Ekkert vélarljós kemur samhliða þessu. [...]

Þetta er akkúrat lýsingin á því hvernig bíllinn hjá mér lét. Fór hægt og rólega versnandi. Loftflæðiskynjarinn var vandamálið - eins og engill eftir að ég skipti um skynjara.

Re: Toyota Hilux mengaður með Nissan TD27eti

Posted: 09.jan 2013, 18:34
frá ellisnorra
olei wrote:

Jahá.
Hvar fékkstu annan skynjara og hvað kostaði hann? Breytti einhverju að rífa þennan bilaða úr sambandi og keyra þannig?

Re: Toyota Hilux mengaður með Nissan TD27eti

Posted: 10.jan 2013, 21:03
frá ellisnorra
Í dag prufaði ég að kippa airflow sensornum úr sambandi og keyra þannig, það breytti engu í hægaganginum en þegar ég fór að keyra þá voru bara innan við 25 hestöfl virk :)

Getur verið að þetta sé airflow sensorinn? Nýr kostar á netinu á milli 10 og 15 þúsund kall með hraðsendingu.. þannig að það er svosem engin ósköp.

Mér datt í hug ágæt leið til að lýsa þessum rykkjum sem ég talaði um áðan, þetta er svipað og barn í ekkasogum eftir mikinn grát :)

Re: Toyota Hilux mengaður með Nissan TD27eti

Posted: 10.jan 2013, 23:59
frá Startarinn
elliofur wrote:Í dag prufaði ég að kippa airflow sensornum úr sambandi og keyra þannig, það breytti engu í hægaganginum en þegar ég fór að keyra þá voru bara innan við 25 hestöfl virk :)

Getur verið að þetta sé airflow sensorinn? Nýr kostar á netinu á milli 10 og 15 þúsund kall með hraðsendingu.. þannig að það er svosem engin ósköp.

Mér datt í hug ágæt leið til að lýsa þessum rykkjum sem ég talaði um áðan, þetta er svipað og barn í ekkasogum eftir mikinn grát :)

Ef nýr nemi kostar ekki nema 15 þús kominn heim þá skaltu ekki hika við að panta hann, menn hafa eytt MUN hærri fjárhæðum í bilanaleitir sem skiluðu engu. Er þetta ekki nokkrunveginn það sem kostar þig að keyra fram og til baka á verkstæði með bílinn?

Re: Toyota Hilux mengaður með Nissan TD27eti

Posted: 12.jan 2013, 06:20
frá ellisnorra
Jæja ég ætla að panta mér nýjan loftflæðiskynjara og sjá hvort það sé vandamálið.

Skiptir einhverju máli hvort það er original eða aftermarket?
Að sjálfsögðu kaupi ég á netinu en það er samt svolítill verðmunur.
Ég hringdi að ganni uppí BL og spurði út í verð á svona, þar kostaði Nissan (hitachi) skynjarinn 92 þúsund en aftermarket sem reyndar var ekki til en hann kostaði 34þúsund minnir mig (allavega þrjátíu-ogeitthvað) síðast þegar hann var til.