Síða 1 af 1

Hedd í 90 Cruiser.

Posted: 09.mar 2010, 12:30
frá Haukur litli
Hverjir hafa verið að selja hedd í 90 Cruiser? Ég er búinn að tala við Toyota og Kistufell og var að velta því fyrir mér hvort menn hafi fundið ódýrari hedd og hvernig þau hafi reynst. Ég er að hugsa um að kaupa ódýrara hedd og eyða frekar mismuninum í afgashitamæli og intercooler eða 3" púst til að hindra þennann mikla hita sem eyðileggur heddin.

Re: Hedd í 90 Cruiser.

Posted: 24.apr 2010, 12:08
frá Gunnar C
Daginn

Kistufell er með mjög góð hedd 162.000-189.000Þ og þér í Ástralíu eru að mæla með þeim í staðin fyrir 349.000 krónu heddið

hjá Toyotu og endast mun betur .Intercooler og rörinn og hosurnar færðu á Ebay var að fá í 4runner fyrir 35.000 komið heim

Kv Gunnar C

Re: Hedd í 90 Cruiser.

Posted: 24.apr 2010, 13:51
frá Haukur litli
Ertu með link á ebay intercoolerinn? Ég var búinn að ræða við þá í Austurhlíð og þeir eru með coolera úr mörgum bíltegundum á 10-15 þús kr.

Re: Hedd í 90 Cruiser.

Posted: 24.apr 2010, 19:00
frá Gunnar C
Ég borgaði 79$ fyrir nýjan cooler hann er 45x30x7.5 cm og svo 115$ fyrir 8 hosur og 6 Ál rör 2" bara hosur eru að kosta 1500-4000 stykið á klakanum .Farðu bara á Ebay og leitaðu eftir intercooler og intercooler pips

Kv Gunnar C

Re: Hedd í 90 Cruiser.

Posted: 11.jún 2010, 15:07
frá Pálmi Ben
Hvar fær maður ódýrar hosur?

Re: Hedd í 90 Cruiser.

Posted: 21.feb 2011, 02:54
frá Valdi B
kauptu þér bara ljóma smjörstykki, endist ábyggilega lengur þegar bíllinn fer að hitna :D

Re: Hedd í 90 Cruiser.

Posted: 21.feb 2011, 07:19
frá Sævar Örn
Hæhæ, eyddu frekar mismuninum í nýjan vatnskassa, það er hitinn á kælivatninu sem eyðileggur heddin