LC80 5" Felgu backspace?

User avatar

Höfundur þráðar
nobrks
Innlegg: 327
Skráður: 31.jan 2010, 21:12
Fullt nafn: Kristján Arnór Gretarsson

LC80 5" Felgu backspace?

Postfrá nobrks » 01.mar 2010, 21:22

Nú vandast ráðin, mig vantar að vita hvort 15" felgur með 12,5cm backspace passi á LC80 hásingar?


Image



User avatar

jeepcj7
Innlegg: 1697
Skráður: 01.feb 2010, 08:46
Fullt nafn: Hrólfur Árni Borgarsson
Bíltegund: F-250 Powerstroke
Staðsetning: Akranes

Re: LC80 5" Felgu backspace?

Postfrá jeepcj7 » 01.mar 2010, 22:07

Ég held örugglega ekki mig minnir að 80 cruiser þoli ekki nema 8-9 cm í backspace.Ég var allavega með felgur sem komu undan 80 bíl með 8-9 cm backspace.
Heilagur Henry rúlar öllu.

User avatar

dabbi
Innlegg: 192
Skráður: 01.feb 2010, 19:51
Fullt nafn: Dagbjartur Vilhjálmsson

Re: LC80 5" Felgu backspace?

Postfrá dabbi » 01.mar 2010, 23:21

Ég er með felgur í skúrnum hjá mér með 10cm backspace ef þig langar að máta? koma undan 90 krúser sem má ekki við meira en 10cm

mbk
Dagbjartur
7701058
kv
Dagbjartur Vilhjálmsson

Óbreyttur jeppakall

User avatar

Höfundur þráðar
nobrks
Innlegg: 327
Skráður: 31.jan 2010, 21:12
Fullt nafn: Kristján Arnór Gretarsson

Re: LC80 5" Felgu backspace?

Postfrá nobrks » 02.mar 2010, 20:25

dabbi wrote:Ég er með felgur í skúrnum hjá mér með 10cm backspace ef þig langar að máta? koma undan 90 krúser sem má ekki við meira en 10cm

mbk
Dagbjartur
7701058


Takk fyrir gott boð!
En ég er með felgur með 10cm backspace, sem er það mesta sem LC60,LC70 og greinilega LC90 þola vegna áreksturs við stýrisenda,
en mér sýnist vera pláss fyrir 12,5cm backspace þ.s. það er langt í stýrisendann.


Dúddi
Innlegg: 198
Skráður: 13.feb 2010, 12:57
Fullt nafn: rúnar ingi árdal

Re: LC80 5" Felgu backspace?

Postfrá Dúddi » 02.mar 2010, 20:42

ég var alltaf með 12,5 hjá mér á land cruiser 80 og ég þekki einn sem er með 14 cm þannig þetta sleppur. Það er samt eitthvað mismunandi með bremsurnar, þetta sleppur á eldri bílunum en þarf aðeins að laga bremsurnar á yngri, veit ekki hvenær þetta skiptist


oddur
Innlegg: 80
Skráður: 19.feb 2010, 10:47
Fullt nafn: Oddur Grétarsson

Re: LC80 5" Felgu backspace?

Postfrá oddur » 02.mar 2010, 23:23

Ég er með cruiser 80 vx, árg 94. Felgurnar hjá mér eru með 105 mm backspace og felgurnar sleikja bremsudælurnar að aftan (mætti alls ekki vera meira)
Eins og Dúddi segir hér að ofan að þá fer þetta eftir árgerðum.


Til baka á “Toyota”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 14 gestir