Síða 1 af 1

lc 90 3" púst

Posted: 17.jan 2016, 23:35
frá SIGURDUR9915
Er með lc90 1999 árg með gömlu vélinni.. hef heyrt að það geri mikið fyrir bílinn að svera pústið uppí 3"..
Hafa menn reynslu af því og er það að breyta miklu?

Re: lc 90 3" púst

Posted: 23.jan 2016, 10:09
frá peturt
Sæll

Ég er með 3" hjá mér í 99 árgerð. Ég er nú ekki að finna neinn mun á afli, Bara annað hljóð. Aftur á móti þá lokaði ég EGR systeminu hjá mér og ég er ekki frá því að hann sé sprækari uppá snúning eftir það.

Re: lc 90 3" púst

Posted: 17.maí 2016, 23:40
frá elli bronco
sælir jeppamenn.

Ég er að pæla að fara út í þessa breitingu ég er með LC90 2001 bíl með 3l. diesel common rail mótor, það þarf að skipta um pústið svo af hverju ekki að breita og setja 3" opið alla leið?
var að pæla:
1. hvort hann standist skoðun?
2. hvað ég er að græða á því?
3. hversu mikil hávaða breyting verður?

Kv Elli