Síða 1 af 1

Land Cruiser HZJ 76

Posted: 16.feb 2010, 22:02
frá Einar
Hvernig er það hefur aldrei komið svona Land Cruiser HZJ 76 til landsins?

LC76-1.JPG

LC76-2.JPG

LC76-3.JPG

LC76-4.JPG

Þessi er til sölu í Belgíu fyrir 26.500€ , sagður nýr, Vél 4,2 lítra sex sílindra diesel 131hö (væntanlega án túrbínu) Euro 2, 10 sæta.
Gormar að framan, blaðfjaðrir að aftan, full fljótandi öxlar að aftan.

Re: Land Cruiser HZJ 76

Posted: 16.feb 2010, 22:21
frá TF3HTH
Skil bara ekki af hverju þessi bíll og 2ja dyra útgáfan, jafn löng, sem var seld hér í nokkur ár, er með fimm gata felgum ??

-haffi

Re: Land Cruiser HZJ 76

Posted: 16.feb 2010, 23:19
frá Einar
Tveggja dyra bíllinn sem var seldur hérna er lengri en þessi. Hvers vegna ættu fimm gata felgur að vera vandamál? Það er til fullt af bílum í þessum þyngdarflokki á fimm gata felgum án þess að það valdi vandræðum.

[youtube]RgfXL3dVHwE&NRU[/youtube]

Re: Land Cruiser HZJ 76

Posted: 16.feb 2010, 23:28
frá TF3HTH
Ég á við að miðað við að alllir aðrir krúserar síðustu áratugi eru á sex gata, þá er það fáránlegt :)

-haffi

Re: Land Cruiser HZJ 76

Posted: 16.feb 2010, 23:55
frá smaris
Þessi bíll er til með V8 4,5 vél sem er 200 hestöfl og uppfyllir Euro 4. Væri sannarlega spennandi kostur ef hægt væri að fá hann hér.

Re: Land Cruiser HZJ 76

Posted: 17.feb 2010, 17:15
frá Alpinus
Mér finnst hann hrikalega flottur, basic, kassalaga og gamaldags eins og alvöru jeppi á að vera í mínum huga... ekki svona straumlínulagað flottræfils appart fullt af rafmagnsdóti með 'fake' viðarklæðningu og beljuskinni á sætum eins og allir jeppar eru í dag (á einn slíkan sjálfur). Þetta er eini LC sem ég gæti hugsað mér að eiga. Svo er líka heil hásing að framan:)

Af hverju eru aldrei fluttir inn t.d. Patrol í DX útgáfu? Mjög basic og minna af rafmagnsdóti til að bila.

Re: Land Cruiser HZJ 76

Posted: 17.mar 2010, 20:13
frá Ausi
TF3HTH wrote:Ég á við að miðað við að alllir aðrir krúserar síðustu áratugi eru á sex gata, þá er það fáránlegt :)

-haffi

Það er ekki alveg rétt 100 cruiserinn er með 5 gata felgur og ég held líka 200 en er ekki viss um hann..