Síða 1 af 1

Appelsínugul Toyota ?

Posted: 11.nóv 2010, 22:53
frá juddi
Sá Orange pick upp áðan á rúntinum á 38" mjög lábygðan var svipaður og desert race bíll út breykkuð bretti og læti tími til komin að menn græji bíla svona væri gaman að vita meyra um hann, þetta minti mig á stóra Bronco sem ég átti sem var 36" breyttur þegar ég fékk hann en á slitnum 33" ég setti hann fyrst á 37" en reif svo úr honum boddy hækkunina og klossana undan aftur fjöðrunum og setti hann á 35" og breikkaði brettin og sleit af honum húsið ,síðan fór að snjó og þá breykkaði ég brettin meyra og setti 40" undir sem sagt vel breiðr og lár Megas var svipað dæmi

Re: Appelsínugul Toyota ?

Posted: 12.nóv 2010, 19:59
frá Brjótur
Já sá hann í gær líka Tacoma hrikalega ljótt að mínu mati:)

Re: Appelsínugul Toyota ?

Posted: 12.nóv 2010, 20:59
frá Kiddi
Þetta er bara drullutöff græja, 70 cm slaglengd að aftan að mig minnir og þar af er meirihlutinn í samslátt! Hækkaður ekki nema um 4 cm frá upphaflegri hæð og 44" breyttur. Þetta bara flott smíði í alla staði hjá Gísla og ég efast um að það séu margir fleiri sem leggja í sama pakkann þó það væri gaman að sjá það ;-)

Re: Appelsínugul Toyota ?

Posted: 12.nóv 2010, 23:40
frá Geiri
En hvar eru myndirnar

Re: Appelsínugul Toyota ?

Posted: 13.nóv 2010, 00:30
frá ellisnorra
Kiddi wrote:Þetta er bara drullutöff græja, 70 cm slaglengd að aftan að mig minnir og þar af er meirihlutinn í samslátt! Hækkaður ekki nema um 4 cm frá upphaflegri hæð og 44" breyttur. Þetta bara flott smíði í alla staði hjá Gísla og ég efast um að það séu margir fleiri sem leggja í sama pakkann þó það væri gaman að sjá það ;-)



Vó.
Þetta kallar á myndir!

Re: Appelsínugul Toyota ?

Posted: 13.nóv 2010, 00:59
frá Freyr
Var sagt að afturhásingin væri smíðuð frá grunni og að í hana færi svo 9" ford drif og öxlar

Re: Appelsínugul Toyota ?

Posted: 13.nóv 2010, 01:02
frá Kiddi
Það eru einhverjar myndir hérna síðan hún var silfurgrá að lit!

http://www1.pirate4x4.com/forum/showthr ... p=11248376

Re: Appelsínugul Toyota ?

Posted: 18.nóv 2010, 22:01
frá arntor
snilld ad sjá hvad ameríkanarnir öfunda okkur mikid, hahah

Re: Appelsínugul Toyota ?

Posted: 03.des 2010, 21:45
frá ellisnorra
Núna þarf nú einhver að fara að finna út hvaða slefandi fjöðrunarkerfi þetta er, teyja er sögð gífurleg, gaman væri að sjá það á olíutunnu og fá specs með

Image

Re: Appelsínugul Toyota ?

Posted: 04.des 2010, 01:36
frá Járni
Mér finnst töff að mála bílinn í stíl við úlpuna.

Re: Appelsínugul Toyota ?

Posted: 05.des 2010, 16:05
frá Kiddi
Teygja, teygja. Hvað er þetta einhver fimleikakeppni um hver getur mest í splitti og spíkatt eða???

Re: Appelsínugul Toyota ?

Posted: 12.jan 2011, 21:06
frá BragiGG
elliofur wrote:Núna þarf nú einhver að fara að finna út hvaða slefandi fjöðrunarkerfi þetta er, teyja er sögð gífurleg, gaman væri að sjá það á olíutunnu og fá specs með

Image


það er held ég ekki pæingin hjá honum Gísla...

frekar einhvað í þessa áttina:
Image

veit ekki hvað maður má kjafta mikið frá... en fjöðrunin í þessum bíl flottari en í mörgum trophytruck/prerunner...
einhvað alveg beyond það sem hefur sést á íslandi áður...

Re: Appelsínugul Toyota ?

Posted: 13.feb 2011, 22:31
frá Kiddi
.

Re: Appelsínugul Toyota ?

Posted: 12.jan 2012, 16:34
frá Turboboy
hvað segiði? hvernig var það, átti ekki að fara annar mótor í þennan í sumar ? eða var það bara slúður ? eitthverjar nýjar mynd ?

Re: Appelsínugul Toyota ?

Posted: 12.jan 2012, 18:54
frá Magni
Hrikalega flottur jeppi hjá honum.
Hérna hafið þið video af honum. http://www.youtube.com/watch?v=wJsLVtkmz0c
Ég var í þessari ferð og þetta svínvirkar hjá honum! Fjöðrunin étur upp allar holur og ójöfnur þannig að hann er ekkert að tapa hraða!

Re: Appelsínugul Toyota ?

Posted: 12.jan 2012, 19:29
frá jeepson
Magni81 wrote:Hrikalega flottur jeppi hjá honum.
Hérna hafið þið video af honum. http://www.youtube.com/watch?v=wJsLVtkmz0c
Ég var í þessari ferð og þetta svínvirkar hjá honum! Fjöðrunin étur upp allar holur og ójöfnur þannig að hann er ekkert að tapa hraða!


Er það bara ég eða er hann að keyra þokkalega mikið af lofti í dekkjunum. Þau virðast ekkert bælast neitt altof mikið. Er þetta kanski einn af þeim sem þarf ekkert að heypa mikið úr?? Það væri gaman ef einhver gæti frætt okkur meira um þennan bíl. T.d hlutföll og aðrar breytingar. Var ekki eitthvað búið að tjúnna þennan jeppa eitthvað?

Re: Appelsínugul Toyota ?

Posted: 12.jan 2012, 21:03
frá dabbigj
Hann er nú nágranni minn og ég stoppa oft til að kíkja á bílinn hjá honum, en annars stendur hann uppí AT núna held ég og hægt að fá að skoða græjuna þar.

Re: Appelsínugul Toyota ?

Posted: 12.jan 2012, 21:34
frá Svenni30
Honum vantar stærri vél, Þá verður gaman hjá honum :)

Re: Appelsínugul Toyota ?

Posted: 12.jan 2012, 23:17
frá Kalli
Þetta er ekki jeppi þetta er vélsleði með 4 dekkjum og hann er hrikalega flottur + drifgetan ógurleg.

kv. Kalli á pattanum.

Re: Appelsínugul Toyota ?

Posted: 13.jan 2012, 02:50
frá jonas honda
er þessi bíll ekki úrbræddur í dag??

Re: Appelsínugul Toyota ?

Posted: 13.jan 2012, 03:48
frá Kölski
Jú jú það er víst rétt enda stendur bíllinn in í arctic trucks upp á kletthálsi vélalaus.

Re: Appelsínugul Toyota ?

Posted: 13.jan 2012, 03:56
frá Valdi B
Image

svipur með þeim hehe :D