Hilux 93
Posted: 09.feb 2014, 14:30
frá xflex
Hvar fæ ég fóðringar í klafan að framan í hilux dc 1993? Og annað hvernig skipti ég um perurnar í mælaborðinu?
Re: Hilux 93
Posted: 12.maí 2014, 18:55
frá Stebbi
Fóðringuna færðu örugglega í Stillingu, Bílanaust, AB og svo í Toyota. Til að skipta um perurnar þá þarftu að taka mælaborðið úr en það er ekkert stórmál í svona Hilux.
Re: Hilux 93
Posted: 12.maí 2014, 19:02
frá xflex
Getur einhver sagt mér hvaða stykki þetta er sem er fyrir neðan inngjöfina, þetta er Hilux 1993 bensín
Mér finnst bílinn ganga of hratt og mig grunar að þetta stykki sé eitthvað bilað
http://s1310.photobucket.com/user/elmarbe/media/Mobile%20Uploads/2014-05/C4F9DB38-12AA-4BA7-82BC-DDF3EB2774CC_zpscjbwmb98.jpg.html
Re: Hilux 93
Posted: 12.maí 2014, 19:55
frá draugsii
Þetta heitir dash pot og er til að halda á móti inngjöfinni svo hún slái ekki snökt af
ég reif þetta úr mínum á sínum tíma
Getur séð hvernig á að prufa og stilla hann þarna