Síða 1 af 1
súkka á 36'' með klöfum
Posted: 09.jan 2011, 22:17
frá Heiðar Brodda
sælir er súkka á klöfum orginal að géra það gott á 36'' og alveg að þola er nú ekki sérfræðingur þannig ég spyr ykkur er að hugsa um t.d. vitara 2,0ltr það er nú ekki hægt að finna gömlu foxna lengur væri nú alveg til einn svoleiðis
kv Heiðar Brodda
Re: súkka á 36'' með klöfum
Posted: 09.jan 2011, 22:24
frá jeepson
Það er víst eitthvað lítið um foxana nú til dags. Ég var með sidekick á 33" og stóð hann sig bara mjög vel. Og ég hefði haldið honum áfram ef ég hefði ekki þurft á stærri bíl með meira plássi að halda. Hún dreif nokkuð vel þegar maður var komin niður í 3-4 pund.
Re: súkka á 36'' með klöfum
Posted: 09.jan 2011, 23:16
frá Heiðar Brodda
en er ekki til einhverjir á 36''' eða eru þeir komnir þá á toyotu hásingar
kv Heiðar Brodda
Re: súkka á 36'' með klöfum
Posted: 10.jan 2011, 06:22
frá Sævar Örn
Þeir eru örfáir á 36" á klöfunum en þeir slitna hratt, hjóllegur, spindlar og demparar að framan, einnig minnkar stýrisgráðan niður í ekki neitt vegna þess að stutt er í grindina(á 14,5"x36")
Ég fann mér þokkalega vel slitin 36x12" en ætla ekki að setja þau undir fyrr en ég er kominn með hilux disel hasingar undir.
Re: súkka á 36'' með klöfum
Posted: 10.jan 2011, 08:40
frá juddi
Jimny tók við af FOX
Re: súkka á 36'' með klöfum
Posted: 10.jan 2011, 16:19
frá Heiðar Brodda
jimny væri kannski í lagi ef það væri búið að sjóða á hann skúffu fyrir aftan hús til að fá einhverja lengd á milli hjóla
kv Heiðar Brodda
Re: súkka á 36'' með klöfum
Posted: 10.jan 2011, 17:20
frá Stebbi
Hjólabúnaðurinn undir Vitara að framan er svo mikið tyggjó að það er hreinlega fyndið að fylgjast með svoleiðis bíl á 36". Þetta gengur allt til og frá í allar áttir og svo þegar það er komið heim þá þarf annaðhvort að skipta um alla slitfleti og hjólastilla eða skipta um drif. Nú eða bæði.
Gleymdu þessu þangað til að þú ert komin með hásingu.