Síða 1 af 1

Hvað passar aftaná J18A Sidekick mótorinn

Posted: 13.aug 2014, 22:10
frá emmibe
Nú vantar mig gírkassa og millikassa aftan á 1800 Sidekick ´97 en ekki mikið af þeim í boði virðist vera. Kemur einhvað annað til greina t.d aftan af 2L vélinni?
Er búinn að googla slatta en engin skotheld niðurstaða.
Kv. Elmar

Re: Hvað passar aftaná J18A Sidekick mótorinn

Posted: 14.aug 2014, 15:35
frá Sævar Örn
Sæll Elmar, vélarnar í J seríunni deila samskonar blokk, þ.e. sami rass á þeim og þal. vænti ég að gírkassi af J20 mótor passi á J18, t.d. af Grand Vitara-

en svona gírkassa ættir þú að fi nna upp í hillu hjá Japönskum vélum t.d. og þá gætirðu borið þá saman, ath að munur gæti verið á kúplingshúsinu t.d. vegna afstöðu púströrs eða festingu kúplingsþræls en þá má vænta að kúplinghúsið passi á milli

Taktu þessu þó með varúð eins og öllu sem menn geta ekki persónulega staðfest,

með kveðju.- Sævar

Re: Hvað passar aftaná J18A Sidekick mótorinn

Posted: 28.aug 2014, 10:51
frá baldur
Það er sama kúplingshús í Sidekick sport og í 1600 bílunum (og sami gírkassi). J vélin er með sama boltapattern aftaná vélinni og G vélin. 2 lítra vélin er hinsvegar með stærra svinghjól og þarf stærra kúplingshús þó að boltagötin séu enn á sama stað.
Eini munurinn á kúplingshúsi í 1800 og 1600 er að 1600 var með vökva kúplingspedala og þar með öðruvísi sveif sem skrúfast utan á öxulinn fyrir kúplingsgaffalinn.

Re: Hvað passar aftaná J18A Sidekick mótorinn

Posted: 28.aug 2014, 18:57
frá emmibe
Takk fyrir þetta Baldur, auðveldar málið mikið.
Kv Elmar

Re: Hvað passar aftaná J18A Sidekick mótorinn

Posted: 24.jan 2016, 20:59
frá emmibe
Jæja get staðfest að Baldur hafði þetta á hreinu, 1600 kassi passar á 1800 vélina og það er gert ráð fyrir vökvakúplinguna þ.e.s boltagöt fyrir festinguna. Sama kúplingslega í báðum.
OG fékk kúplingsleguna staka í umboðinu á 6900 en Fálkinn bauð mér að pannta hana á 7700 kr. Bara seld sett annar staðar þar sem ég ath.
Svona smá í upplýsingabankann.
Kv. Elmar

Re: Hvað passar aftaná J18A Sidekick mótorinn

Posted: 25.jan 2016, 12:40
frá Járni
Like á upplýsingabankann!