Síða 1 af 1

Nýkeyptur Musso diesel

Posted: 07.nóv 2012, 22:23
frá Flauel
Góðan daginn,fjárfesti um daginn í mínum fyrsta Musso...Musso prestige turbo diesel árgerð 1998.
Er hrikalega sáttur með bílinn,en ég lét fara með hann í gegnum ástandsskoðun fyrir kaup,og þar kom fram einhver leki á stýrisdælu og eitthvað smá olíusmit á sjálfskiptingu!

Hvar er best fyrir mig að finna nýja stýrisdælu á sem bestu verði,og með þetta smit í sjálfskiptingunni,er ekki möguleiki að ég losni við það með að skipta um síur í sjálfskiptingunni?

Stefán Hall

Re: Nýkeyptur Musso diesel

Posted: 08.nóv 2012, 00:24
frá Styrmir
Sæll ég á örugglega til stýrisdælu handa þér
S:6615149
Kv:Styrmir

Re: Nýkeyptur Musso diesel

Posted: 11.nóv 2014, 22:59
frá osi453679@gmail.com
ég á sjálfskiftinu ef þig vantar 7774353

Re: Nýkeyptur Musso diesel

Posted: 12.nóv 2014, 06:54
frá eyberg
Til lukku :-)

Komdu mendilega með myndir

Re: Nýkeyptur Musso diesel

Posted: 12.nóv 2014, 15:20
frá Lada
Sælir

Það er kannski ekki úr vegi að benda mönnum á að þessi þráður var stofnaður í nóvember 2012.

En það væri svo sem ekki galið að endurvekja hann og fá þá fram hvað reynslu upphafsmaður hefur af þessum bíl sínum.

Kv.
Ásgeir