Síða 1 af 1
Re: Patrol sérfræðingur?
Posted: 24.jan 2012, 11:15
frá birgthor
Opna drifkúluna að frama og gæjast inní hana. Að aftan mindi ég fara yfir vacoom dótið og tryggja að allar lagnir séu hreinar og skili vacoominu.
Re: Patrol sérfræðingur?
Posted: 24.jan 2012, 11:41
frá AgnarBen
Fer hljóðið þegar þú tekur hann úr fjórhjóladrifinu ?
Fyrsta gisk út af svona smellum er að önnur lokan (eða báðar) séu farnar að svíkja.
Varðandi lásinn að aftan þá getur ýmislegt verið að svíkja, einfaldast að byrja á því að skoða segulspórnar og ath hvort sogið/blásurinn sé í lagi (eru á hvalbak). Kíktu á þennan þráð:
http://f4x4.is/index.php?option=com_jfusion&Itemid=228&jfile=viewtopic.php&f=6&t=25806&p=150869&hilit=+patrol+vacum#p150869
Re: Patrol sérfræðingur?
Posted: 24.jan 2012, 13:13
frá geirsi23
athuga vel liðina út við hjól, þeir geta verið slitnir og leiðinlegt að sjá það..
Re: Patrol sérfræðingur?
Posted: 24.jan 2012, 15:45
frá JoiVidd
svopni wrote:Tók reyndar eftir því áðan að það vantar 2 bolta í lokuna. En þetta virtist byrja bara alltíeinu. S.s bara þegar ég setti í framdrifið á sunnudaginn þá heyrðist þetta greinilega. Það er bara spurning um að henda honum uppá búkka, af með hjólin og skoða allt voða vel. Jafnvel að herða uppá legunum í leiðinni :) Ég er búinn að lesa mér til um þetta vacuum dót, og svo lengi sem það er ekki eitthvað að í kögglinum sjálfum þá er þetta bara útilokunaraðferðin. Virðist vera frekar einfalt.
Þetta er sáraeinfalt, bara að prófa nokkur atriði
Re: Patrol sérfræðingur?
Posted: 24.jan 2012, 16:19
frá jeepson
Ertu búinn að setja nýja bolta í lokuna í staðin fyrir þessa tvo sem að vantaði. Getir ekki bara verið að lokan sé laus hjá þér. Ég skipti om lokur á mínum í sumar. Og setti aðrar superwinch lokur í svo að ég væri ekki altaf að snúa öllu dótinu. Og þá tók ég eftir því að gömlu soðnu lokurnar voru farnar ða losna. en ég varð reyndar aldrei var við nei högg eða hljóð.
Re: Patrol sérfræðingur?
Posted: 24.jan 2012, 16:53
frá HaffiTopp
Krossarnir í framdrifsskaftinu.
Kv. Haffi
Re: Patrol sérfræðingur?
Posted: 24.jan 2012, 18:55
frá Hagalín
Skot í loftið.
Er tvöfaldur liður hjá þér að framan? Ef svo er gæti þetta verið að kúlan í liðnum sé orðin kjöguð og nuddast svona til. Ef þetta kemur beint upp í bíl gæti það alveg verið.
Re: Patrol sérfræðingur?
Posted: 24.jan 2012, 21:01
frá jongunnar
Hvar á landinu ertu það væri kannski hægt að skoða þetta með þér...
Re: Patrol sérfræðingur?
Posted: 24.jan 2012, 21:07
frá StefánDal
Hafa drifsköftin verið tekin í sundur? Krossarnir þurfa að snúa eins í báðum endum. Annars myndast þvingun sem getur orsakað svona smelli.
Re: Patrol sérfræðingur?
Posted: 24.jan 2012, 21:18
frá jeepson
svopni wrote:Ég bý í Reykjavíkurhreppi. Þetta kom nú bara alltíeinu. Um leið og ég setti í framdrifið. Ég hef því miður litla aðstöðu til að skoða þetta, aðra en snjóskaflinn á planinu :) En ég gæti hugsanlega strokið Jóa Viðars á réttum stöðum og fengið hann til að kíkja á þetta með mér inni í skemmu hjá honum um helgina :) Ég er bara svo drullu hræddur um að vera að skemma eitthvað. En þó heyrist ekki múkk á meðan ég er bara í afturdrifinu, þannig að það er kannski alltí lagi að keyra hann svoleiðis?
Þú talar um að það heyrist ekkert í afturdrifinu. Eru lokurnar á þegar þú ert að prufa hann í afturdrifinu??
Re: Patrol sérfræðingur?
Posted: 24.jan 2012, 21:22
frá jongunnar
Ég er á skaganum