Síða 1 af 3
					
				Cummins í patrol
				Posted: 16.júl 2011, 23:09
				frá jeepson
				Sælir spjallverjar. Ég var búinn að frétta að einhver hafði sett cummings í patrol. Gott ef það var ekki verið að tala um það hérna á spjallinu. Einhver sem veit hver gerði þetta og jafnvel hægt að sjá einhverjar myndir af þessu?? Mig langar svakalega að fá mér cummings vél í pattann minn :)
			 
			
					
				Re: Cummings í patrol
				Posted: 17.júl 2011, 03:48
				frá Sævar Örn
				Vélarnar heita cummins, og eru að mínu mati með þeim skotheldari sem bjóðast. og vinna bara mjög vel og eyða litlu ef þær eru í þokkalegu lagi.
Hér er youtube hjá einum Cummins sérfræðingi 
http://www.youtube.com/user/TheDieselStop 
			
					
				Re: Cummings í patrol
				Posted: 17.júl 2011, 10:47
				frá jongunnar
				ha er búið að gera það. Nú er ég líka spenntur það væri gaman að sjá myndir af því.
			 
			
					
				Re: Cummings í patrol
				Posted: 17.júl 2011, 11:11
				frá Brjótur
				sælir já það eru allavega tveir sem ég veit um búnir að þessu og minnstu munaði að ég gerði þetta í fyrra :)
það er strákur sem er að vinna í Víkurverk fellihýsaverkstæðinu sem var að vinna í Breytir sem er búinn að setja svona í hjá sér, og svo var Guðbjartur Smári að setja svona í salinn hjá sér, þetta er bara skemmtilegt mission og svo er svo auðvelt að bæta við hestöflum  í þessari vél.
kveðja Helgi
			 
			
					
				Re: Cummings í patrol
				Posted: 17.júl 2011, 11:23
				frá jeepson
				Er enginn sem á myndir af þessu eða getur reddað myndum af þessu. Einnig væri gaman að fá að vita hvaða árgerðir af vélum menn hafa verið að nota. þá meina ég uppá rafmagn og annað að gera. Ég veit um gamlann ram með svona vél sem er reyndar bara afturdrifinn. Og það hvarlaði að mér að reyna að fá hann til að taka vélina úr honum. En hugsanlega hefði ég ekki týmt því. Enda ekkert víst að eigandinn vilji láta bílinn.
			 
			
					
				Re: Cummings í patrol
				Posted: 17.júl 2011, 19:18
				frá Bóndinn
				Sælir
ég væri til í myndir eða bara að fá að skoða þessa bíla sem eru komnir með cummins
Við ætlum að setja cummins í okkar patrol í haust.Það væri fínt að fá að skoða þetta hjá öðrum.
Kv Geiri
			 
			
					
				Re: Cummings í patrol
				Posted: 17.júl 2011, 21:39
				frá jeepson
				Geiri þú verður duglegur að setja inn myndir af ferlinu :) Hvaða árgerðir af cummins eru menn að nota? Er þetta ekki orðið svo tölvustýrt nú til dags?
			 
			
					
				Re: Cummings í patrol
				Posted: 18.júl 2011, 20:14
				frá birgthor
				Það er einn búinn að vera á Renniverkstæði Ægis sem er í þessari breytingu, rauður patrol með 2001 lúkkinu. Það virtist ekki vera mikið pláss eftir í húddinu á honum. En þessi rauði patrol var ef ég man rétt með 4 lítra patrol mótornum fyrir.
			 
			
					
				Re: Cummings í patrol
				Posted: 18.júl 2011, 20:50
				frá jeepson
				er virkilega enginn sem að þekkir einhvern sem að hefur gert þetta eða getur bent mér á viðkomandi sem að hefur gert þetta. Mig langar svakalega að sjá myndi og fá þær upplysingar sem að ég þarf í þetta verkefni. Tek það samt fram að þetta er alt á teikniborðinu enþá. Ég er ekki kominn með kram í þetta.
			 
			
					
				Re: Cummings í patrol
				Posted: 19.júl 2011, 01:13
				frá Bóndinn
				Sko ég held að það skipti ekki mál í hvernig bíl þú setur cummings húddið verður alltaf fullt!!!
Við erum komin með 24 ventlamótorinn og skiptingu árg 99.Ljónin ætla að gera lógír úr Np millikassanum og þar aftaná kemur patrol millikassinn.
Það er allt hægt þetta er bara spurning um að koma þessu sæmilega fyrir.
Ég mun að sjálfsögðu taka myndir þegar ég byrja á þessu og monta mig ægilega af!!
Kveðja Geiri
			 
			
					
				Re: Cummings í patrol
				Posted: 19.júl 2011, 07:38
				frá jongunnar
				Hvernig er þyngdin á Cummins miðað við Nissan
			 
			
					
				Re: Cummings í patrol
				Posted: 19.júl 2011, 12:07
				frá andrig
				samkvæmt smá gúgli er  5.9 = 462kg
			 
			
					
				Re: Cummings í patrol
				Posted: 19.júl 2011, 12:52
				frá GudniPall
				Bjartur á rauða patrolinn sem strákarnir hjá Renniverkstæði Ægis hafa verið að breyta. Mig minnir endilega að þeir hafi verið að setja 12 ventla mótor í þann bíl.
Kv. Guðni
			 
			
					
				Re: Cummings í patrol
				Posted: 19.júl 2011, 15:36
				frá jeepson
				En ætlar enginn að uppljóstra neinum myndum?? Það væri einnig gaman að vita hvernig þetta með rafmagn og annað í kringum þessar vélar. Ef einhver gætti frætt okkur um það.
			 
			
					
				Re: Cummings í patrol
				Posted: 19.júl 2011, 21:24
				frá birgthor
				RAFMAGN!!!!! er það ekki seinnitíma vandamál í svona alvöru dísel rokkum. ;)
			 
			
					
				Re: Cummings í patrol
				Posted: 19.júl 2011, 21:41
				frá jeepson
				birgthor wrote:RAFMAGN!!!!! er það ekki seinnitíma vandamál í svona alvöru dísel rokkum. ;)
Jú ætli það ekki :) En samt vissara að vita hernig menn hafa verið að hátta þessu.
 
			
					
				Re: Cummings í patrol
				Posted: 19.júl 2011, 22:20
				frá jongunnar
				Rafmagn er svo einfalt það samanstendur af plús, mínus og jörð...
			 
			
					
				Re: Cummings í patrol
				Posted: 20.júl 2011, 12:34
				frá Bóndinn
				jongunnar wrote:Rafmagn er svo einfalt það samanstendur af plús, mínus og jörð...
Mínus og jörð?
 
			
					
				Re: Cummings í patrol
				Posted: 20.júl 2011, 12:59
				frá jongunnar
				Já í  húsarafmagni
Orðrétt er þetta þá reyndar plús, Núll og Jörð
en í bílum er bara plús og mínus
			 
			
					
				Re: Cummings í patrol
				Posted: 20.júl 2011, 17:37
				frá Startarinn
				Jón Gunnar
Þú átt að vita betur, það er enginn plús í riðstraums rafmagni!!
			 
			
					
				Re: Cummings í patrol
				Posted: 20.júl 2011, 22:30
				frá jongunnar
				FASI   NÚLL og JÖRÐ     andskotinn hafi það ADDI ;)
			 
			
					
				Re: Cummings í patrol
				Posted: 20.júl 2011, 22:34
				frá jeepson
				Áður en við vitum af þá verðum við orðnir sérfræðingar í rafmagni en engar myndir nér fleiri upplysingar um það sem að ég er að falast eftir. En jæja. Við verðum þá bara að láta það duga að verða rafirkjar :D hehe
			 
			
					
				Re: Cummings í patrol
				Posted: 20.júl 2011, 22:40
				frá Einar
				andrig wrote:samkvæmt smá gúgli er  5.9 = 462kg
Og hvað viktar þetta ónýta dót sem kemur orginal í þessum ágætu farartækjum?
 
			
					
				Re: Cummings í patrol
				Posted: 20.júl 2011, 22:41
				frá jeepson
				Einar wrote:andrig wrote:samkvæmt smá gúgli er  5.9 = 462kg
Og hvað viktar þetta ónýta dót sem kemur orginal í þessum ágætu farartækjum?
 
Það væri einmitt gaman að vita hvað t.d 2,8 vigtar. Ef ég hef skilið þá rétt á ástralska patrol spjallinu þá vigta 5,9 og tb42 svipað.
 
			
					
				Re: Cummings í patrol
				Posted: 20.júl 2011, 22:55
				frá jongunnar
				ÞAð eina sem ég um vélina er að hún sé hálft tonn.......
			 
			
					
				Re: Cummings í patrol
				Posted: 20.júl 2011, 23:09
				frá stjanib
				
			 
			
					
				Re: Cummings í patrol
				Posted: 21.júl 2011, 19:13
				frá jeepson
				Ég hélt að 2,8 væri þyngri. En þá spyr ég bara. Hvað er 302 eða 350 þung. Eru þær ekki bara rétt þyngri en 2,8?
 
			
					
				Re: Cummings í patrol
				Posted: 21.júl 2011, 19:28
				frá stjanib
				350 er um 300 kg ef ég man rétt, svo er einhver smá munur ef þú ert með BBC eða SBC..
			 
			
					
				Re: Cummings í patrol
				Posted: 22.júl 2011, 00:36
				frá Kiddi
				Chevrolet 350 mótor með álmilliheddi og pottpústgreinum er 250 kg og er það með stýrisdælu og alternator.
Það er ekki SMÁ munur á SBC og BBC, enda heitir sú síðarnefnda BIG BLOCK af ástæðu. Hún er einhverjum 30-40 kg þyngri og má því segja að hún sé um 300 kg.
			 
			
					
				Re: Cummings í patrol
				Posted: 22.júl 2011, 11:36
				frá stjanib
				
			 
			
					
				Re: Cummings í patrol
				Posted: 22.júl 2011, 15:30
				frá Bóndinn
				Sjáiði hvernig cummins dettur í húddið á Datsúninum!!!!
Flott að fá smá myndir nú er bara að finna þessa herramenn sem eiga þeissa bíla hér á landi.
Það hlítur einhver að þekkja þessa menn eða geta bent á einhvern sem þekkir þá þannig að við hinir gætum fengið að skoða..
Kv Geiri
			 
			
					
				Re: Cummings í patrol
				Posted: 22.júl 2011, 15:36
				frá jeepson
				Bóndinn wrote:Sjáiði hvernig cummins dettur í húddið á Datsúninum!!!!
Flott að fá smá myndir nú er bara að finna þessa herramenn sem eiga þeissa bíla hér á landi.
Það hlítur einhver að þekkja þessa menn eða geta bent á einhvern sem þekkir þá þannig að við hinir gætum fengið að skoða..
Kv Geiri
akkúrat. Það er nú það sem að ég er að falast eftir.
 
			
					
				Re: Cummings í patrol
				Posted: 27.júl 2011, 21:13
				frá gsf
				ég er búinn að þessu og er hægt að skoða há mer
 
			
					
				Re: Cummings í patrol
				Posted: 27.júl 2011, 21:39
				frá jeepson
				gsf wrote:03.07.11 310.JPG
ég er búinn að þessu og er hægt að skoða há mer
 
og hvar getum við nálgast fleiri myndir af ferlinu?
 
			
					
				Re: Cummings í patrol
				Posted: 28.júl 2011, 00:03
				frá Hagalín
				gsf wrote:03.07.11 310.JPG
ég er búinn að þessu og er hægt að skoða há mer
 
Vottur af smá öfund hér. 
En það eru nokkur atriði sem ég velti fyrir mér þegar maður hugsar út í svona  aðgerð.
Eru menn að taka allt settið, vél, skiptingu og millikassa frá sama framleiðanda?
Þurfa menn ekki að láta renna nöfin fyrir meira bil á milli innri og ytri og stærri ytri legu?
Hvernig er að tengja mælaborð  miðstöð og þessháttar dót þegar svona rokkur er kominn í?
Hvernig ætli 6.0l Ford mótorinn sé í stærð miðað  við Cummings? Það gæti líka verið skemmtilegur
kostur, orginal 325hp og mjög auðvelt að gera hana mun sprækari......
 
			
					
				Re: Cummings í patrol
				Posted: 28.júl 2011, 01:19
				frá Kiddi
				Hagalín wrote:gsf wrote:03.07.11 310.JPG
ég er búinn að þessu og er hægt að skoða há mer
 
Vottur af smá öfund hér. 
En það eru nokkur atriði sem ég velti fyrir mér þegar maður hugsar út í svona  aðgerð.
Eru menn að taka allt settið, vél, skiptingu og millikassa frá sama framleiðanda?
Þurfa menn ekki að láta renna nöfin fyrir meira bil á milli innri og ytri og stærri ytri legu?Hvernig er að tengja mælaborð  miðstöð og þessháttar dót þegar svona rokkur er kominn í?
Hvernig ætli 6.0l Ford mótorinn sé í stærð miðað  við Cummings? Það gæti líka verið skemmtilegur
kostur, orginal 325hp og mjög auðvelt að gera hana mun sprækari......
 
Í guðanna bænum ekki hreyfa við hjólnöfunum á Patrol!
Ég veit til þess að eitt slíkt brotnaði og því tel ég gæfulegra að hafa þetta original. Fyrir utan allt vesenið sem er á þessum svokölluðu "óbrjótanlegu" flöngsum.
 
			
					
				Re: Cummings í patrol
				Posted: 28.júl 2011, 02:46
				frá birgthor
				Þó svo ég sé oft sammála þér Kiddi þá er ég alls ekki sammála þér núna. 
Að breikka bilið á milli leganna minnkar álagið á legurnar til muna, það má finna greinilegan mun á hvað nöfin hitna þegar þau eru orginal og breytt. 
Það er töluvert af patrolum sem hafa sýnt fram á töluvert lengri akstur á hverri legu eftir svona breitingu.
Að stækka ytri leguna er svo líka mjög sniðugt, því það er alveg fullljóst að álagið er allt öðruvísi þegar bíll er kominn á 44"+ heldur en orginal. Og ekki má gleyma því að bíllinn er hannaður með allt annað í huga en þessháttar breytingar.
Læsti flangsinn er svo að sjálfsögðu ekki óbjótanlegur, ekki frekar en allt annað úr stáli. Hinsvegar á hann alveg að halda við flest tilfelli, en mig grunar að flangsarnir úr patrolnum "þýnum" hafi verið vitlaust hertir.
			 
			
					
				Re: Cummings í patrol
				Posted: 28.júl 2011, 08:32
				frá Kiddi
				Ægis-legustúturinn brotnaði á milli leganna. Hjólið datt undan, bremsudæluhaldari brotnaði, öxull brotnaði, frambretti skemmdist. Legan var í toppstandi og hefði mátt nota aftur ef hún hefði ekki lent í mölinni.
Þá held ég það sé betra að hafa original legubúnað og fylgjast með slagi reglulega. Þegar legustúturinn brotnar þá er það ekkert sem þú finnur fyrir fyrr en það skeður og það er ekkert sem segir að það geti ekki gerst á 90 km hraða eins og 5 km hraða í þessu tilfelli.
			 
			
					
				Re: Cummings í patrol
				Posted: 28.júl 2011, 10:51
				frá AgnarBen
				Held að ég verði að vera sammála Kidda, ég kaus að halda bara orginal búnaðinum og sætta mig við stuttan endingartíma á legunum, það kostar ekki mikið að skipta um legur ef menn gera þetta sjálfir.  Ég hafði þetta bara þannig hjá mér að ég herti reglulega upp á þessu og smurði og skipti síðan bara um legur á 30 þús.km fresti hvort sem legurnar voru í lagi eða ekki.  Aðalatriðið er að gæta vel að smurningunni í legunum, bæði við leguskipti og ekki síður þegar hert er upp á.  Grunar að mikið af þessum legum sem hafa verið að fara séu vegna þess að menn nennan ekki að hugsa nógu vel og nógu oft um þetta.
			 
			
					
				Re: Cummings í patrol
				Posted: 28.júl 2011, 17:59
				frá jeepson
				Það sem að ég hafði í huga ef að ég færi útí svona aðgerð var að taka auðvitað vélina með skiptingu og millikassa frá sama framleiðanda. Hels hefði ég vilja geta haft hann beinskiftan. Ég hafði hugsað mér dana 60 eða 70 hásingar í staðin fyrir orginal hásingarnar. Enda hafði ég hugsað mér að hafa vélina öflugari en orginal. Ég er pínu hræddur um að orginal patrol hásingarnar þoli ekki þessa vél. Ég var að ræða þetta við fyrrverandi eiganda bílsins míns og hann mældi klárlega með að fara í það minsta í 60 hásingar. En þetta er bara mín hugmynd. Það væri gaman að sjá hvað ykkur fynst um þesaa hugmynd. Svo vil ég endilega fara að fá fleiri myndir af svona aðgerð, og hvað þarf að gera. :)