Góð ábending Elli. Þannig þarf það að vera, ef það á að nota elimentið í vatnskassanum. Nú veit ég ekki röðina í Terrano-inum. En Kjartann í Mosó, var að benda mér á að aftengja spíralinn í vatnkassanum á Fordinum, þar sem að hann á það til að stíflast. Ljónin tóku líka undir það, þegar að ég nefndi það við þá. Skyldist að það væri aðalega vegna sverleika spíralins, á eftir að skoða þetta betur hjá mér í fordinum. Ég veit það til dæmis að, ef mótþrýstingurinn til kælis fyrir skiftinguna verður of mikill í Fordinum, þá opnar bypasslokinn á skiftingunni og hleypir olíunni framhjá kælir, frekar en að sprengja lagnir o.s.fr.
hummm. Fór allt í einu að spá í það, varðandi sj.sk. bílana á landsbyggðinni. Þeir ná yfirleitt aldrei eða varla að lyfta hitamælir á milli staða, þar sem að vegalengdirnar eru svo stuttar. Ég þarf til dæmis að láta mína bíla ganga lausagang, þegar að maður er að skjótast einhvað inn, til að ná upp síðasta starti og annað slagið að setja hleðslutæki á geyma, til að þurfa ekki að vera í því að skifta um geyma, þar sem að þeir yrðu alltaf hálf tómir. Síðan byrjar þessi spírall í vatnkassanum ekki að virka sem hitari, fyrr en lásinn er búinn að opna. Það er sennilega betra að setja hitastýrðan bypass loka á milli lagnanna til kælisins og láta hann stjórna því hvort að vökvinn þurfi kælingu eða ekki. Passa bara að hann sé normali close, þannig að ef hann missir straum, þá fer olían í gegnum kælinn. Eða nota hitastýrðan loka með þreifun, eins og er notað í kælikerfum. Veit bara ekki hvort að þeir þoli gauraganginn. Svo er hægt að nota svona termostat:
http://store.sure-electronics.com/dc-te11434 og tengja segulloka við termostatið. Þá fær maður þetta allt beint í æð.
Óli, er ekki bara dekkjastærðin orðin of mikil fyrir orginal kæla, þar sem að afgas og álag er orðið það mikið, miðað við venjulegan búnað, og fyrir það sem bíllinn er hannaður fyrir ?