Síða 1 af 1
Gangtruflanir í Patrol 91
Posted: 20.jún 2011, 23:08
frá Kalli
Patrol 2,8 TD 91 árgerð. Byrjar í 1800 snúningum, búinn að skifta um hráoliusíu setti glæra slöngu frá síu að olíuverki og engar loftbólur en vantaði í hráolíusíuna ( hún var sirka 1/2 ) ?
svar óskast :O/
Re: Gangtruflanir í Patrol 91
Posted: 21.jún 2011, 09:44
frá Kalli
?
Re: Gangtruflanir í Patrol 91
Posted: 21.jún 2011, 09:47
frá Hagalín
Eitt skot út í bláinn. Getur verið að oliuverkið sé að taka falskt loft úr því að sýjan nær ekki að fylla sig??
Re: Gangtruflanir í Patrol 91
Posted: 21.jún 2011, 17:47
frá jeepcj7
Gat á lögn aftur í tank?
Re: Gangtruflanir í Patrol 91
Posted: 21.jún 2011, 18:30
frá jeepson
Einhverntíman var ég ú búinn að heyra það að retúrinn hafi verið að búa til vandamál hjá einhverjum hérna á spjallinu sem var eða er með patrol Endilega leiðréttið mig ef að ég er að fara með einhverja vitleysu.
Re: Gangtruflanir í Patrol 91
Posted: 21.jún 2011, 19:00
frá Kalli
Setti olíudælu á milli síu og verks en ekkert gerðist, setti loft á lögnina að tanki og blés rækilega, búinn að skifta um báðar slöngurnar frá tanki að verki er að hugsa hvort verkið sé stíflað og hvað gerir maður þá ?
Gísli hvað er retúrinn ?
kv. Kalli
Re: Gangtruflanir í Patrol 91
Posted: 21.jún 2011, 19:04
frá Hermann
það var einn sem ég þekki lenti í þessu lika og það sem var að hjá honum var að olíu rörið frá tánk og upp að vel var með gati þanig að hann var að allaf að taka loft ég mindi skoða það :D
Re: Gangtruflanir í Patrol 91
Posted: 21.jún 2011, 19:06
frá Kalli
Kalli wrote:Setti olíudælu á milli síu og verks en ekkert gerðist, setti loft á lögnina að tanki og blés rækilega, búinn að skifta um báðar slöngurnar frá tanki að verki er að hugsa hvort verkið sé stíflað og hvað gerir maður þá ?
Gísli hvað er retúrinn ?
kv. Kalli
Re: Gangtruflanir í Patrol 91
Posted: 21.jún 2011, 19:35
frá jeepson
Retúrinn. Ég er að tala um lögnina sem að fer aftur í tank frá olíuverkinu.
Re: Gangtruflanir í Patrol 91
Posted: 24.jún 2011, 22:01
frá Kalli
jeepson wrote:Retúrinn. Ég er að tala um lögnina sem að fer aftur í tank frá olíuverkinu.
Retúrinn = Bakflæði var að prufa það að taka slönguna(bakflæðið) frá olíuverki og starta og það kom engin olía út.
kv. kalli
Re: Gangtruflanir í Patrol 91
Posted: 24.jún 2011, 22:34
frá jeepson
Pabbi kallar þetta altaf retúr. Þeir gerðu það víst í gömlu góðu daga :D
Re: Gangtruflanir í Patrol 91
Posted: 24.jún 2011, 22:37
frá hobo
Þetta er svona pípara-tungumál :)
Re: Gangtruflanir í Patrol 91
Posted: 24.jún 2011, 23:01
frá jeepson
hobo wrote:Þetta er svona pípara-tungumál :)
Já þú meinar :)
Re: Gangtruflanir í Patrol 91
Posted: 28.jún 2011, 05:41
frá Hjalti K
Þú gætir prófað að fá þér brúsa með hreinni olíu og setja slönguna að olíuverkinu ofan í hann, þannig að olíuverkið fá örugglega olíu. Ef gangurinn lagast við þetta er ástæða til að skoða síuna og súhúsið aftur.
kv Hjalti
Re: Gangtruflanir í Patrol 91
Posted: 28.jún 2011, 22:22
frá Kalli
[quote="Hjalti K"]Þú gætir prófað að fá þér brúsa með hreinni olíu og setja slönguna að olíuverkinu ofan í hann, þannig að olíuverkið fá örugglega olíu. Ef gangurinn lagast við þetta er ástæða til að skoða síuna og súhúsið aftur.
Það var gat á lögninni aftur í tank