Hlutföll Patrol


Höfundur þráðar
Óskar1
Innlegg: 25
Skráður: 10.feb 2010, 16:04
Fullt nafn: Óskar Rafn Emilsson

Hlutföll Patrol

Postfrá Óskar1 » 09.mar 2010, 21:58

Sælt veri fólkið, mig langaði að ath. hvað eru orginal hlutföll í patrol 98.
Hvaða hlutföll eru menn með í við 38" og svo "44.
Með fyrir fram þökk.



User avatar

Járni
Stjórnandi
Innlegg: 1391
Skráður: 30.jan 2010, 22:43
Fullt nafn: Árni Björnsson
Bíltegund: Land Rover
Staðsetning: Akureyri
Hafa samband:

Re: Hlutföll Patrol

Postfrá Járni » 09.mar 2010, 22:31

Ef mér skjátlast ekki eru 4.625:1 í 2.8 patrol orginal. Þegar þau eru lækkuð er farið í 5.42:1
Ég sá eitthvað um daginn að önnur hlutföll væru núna notuð í nýjustu bílana, þeir í Breyti geta sjálfsagt svarað því.

Kv, Árni
Land Rover Defender 130 38"

User avatar

AgnarBen
Innlegg: 884
Skráður: 10.mar 2010, 10:30
Fullt nafn: Agnar Benónýsson

Re: Hlutföll Patrol

Postfrá AgnarBen » 10.mar 2010, 13:34

5.13 voru líka eitthvað notuð en eru þó mun sjaldgæfari en 5.42. Ég hef ekki heyrt um ný hlutföll en væri gaman að heyra meira um það ef svo er ...
Agnar Benónýsson

Jeep Cherokee 39,5"
http://www.jeppaspjall.is/viewtopic.php?f=9&t=7300

User avatar

Járni
Stjórnandi
Innlegg: 1391
Skráður: 30.jan 2010, 22:43
Fullt nafn: Árni Björnsson
Bíltegund: Land Rover
Staðsetning: Akureyri
Hafa samband:

Re: Hlutföll Patrol

Postfrá Járni » 10.mar 2010, 15:35

Já, 5,13:1 voru þessi sem ég var að tala um. Hélt það væri í sambandi við nýrri bílana en voru þetta eldri hlutföll fyrir tíma 5.42:1 ?
Land Rover Defender 130 38"

User avatar

AgnarBen
Innlegg: 884
Skráður: 10.mar 2010, 10:30
Fullt nafn: Agnar Benónýsson

Re: Hlutföll Patrol

Postfrá AgnarBen » 10.mar 2010, 15:56

þessi hlutföll voru eitthvað notuð fyrir mörgum árum síðan en eitthvað heyrði ég að þau hefðu ekki verið jafn góð og 5.42 .... og svo eru þau auðvitað ekki jafn lág og alls ekki nógu lág fyrir 44" dekk !
Agnar Benónýsson

Jeep Cherokee 39,5"
http://www.jeppaspjall.is/viewtopic.php?f=9&t=7300


Rúnarinn
Innlegg: 274
Skráður: 02.feb 2010, 11:50
Fullt nafn: Rúnar ólafsson
Bíltegund: Terrano II

Re: Hlutföll Patrol

Postfrá Rúnarinn » 10.mar 2010, 16:04

hverjir framleiða þessi 5:42 hlutföll??? Þarf bráðlega að leita mér af hlutföllum fyrir terrano framan og aftan og hef heyrt að þeir hafi verið að einmitt að nota þessi hlutföll í þeim bílum líka. hins vegar er ekki nema 7" drifið að framan að mig minnir en veit ekki hvað það er að aftan.


Til baka á “Nissan”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 13 gestir