Síða 1 af 1

2.8 bank

Posted: 05.sep 2015, 13:40
frá mikki
er með patrol 2.8 hann reykir i lausagangi og heyrist bank i loftsiu boxsinu hvað gæti þetta verið er orðin ráðalaus

Re: 2.8 bank

Posted: 05.sep 2015, 15:14
frá svarti sambo
Opinn ventill eða boginn.

Re: 2.8 bank

Posted: 05.sep 2015, 16:05
frá mikki
helt það i fyrstu svo að eg tok heddið af og let plana og þrystiprofa og skipta ut ventlum en samt heldur vandamalið afram er buinn að athuga með timann 2X og allt i goðu þar

Re: 2.8 bank

Posted: 05.sep 2015, 16:18
frá svarti sambo
Ef þú ert alveg viss um að bankið sé að koma frá lofthreinsaranum, þá er það vegna óþetts ventils. Hvort sem að það er vegna rangra ventlastillingar eða sæti og ventill, þéttir ekki. Voru ventlar og sæti slípuð.

Re: 2.8 bank

Posted: 05.sep 2015, 18:14
frá mikki
ja allt gerti i kistufelli en hvernig get eg ventastillt þennann motor ?

Re: 2.8 bank

Posted: 05.sep 2015, 18:51
frá svarti sambo
Nú þekki ég ekki þennan mótor, en það hljóta að vera einhverjir Patrol snillingar hér á spjallinu, sem geta frætt þig nákvæmlega um ventlastillinguna.

Spurning hvort að þú finnir ekki eitthvað hér: http://www.nude.is/stuff/?dir=Vi%C3%83% ... als/Nissan

Re: 2.8 bank

Posted: 05.sep 2015, 20:05
frá Startarinn
RD28 og RD28T eru með vökvaundirlyftur, svo það þarf ekki að skoða þær

Getur verið að bankið sé úr olíuverkinu?

Bléstu úr spíssarörunum þegar þú settir saman aftur?
Ég fokkaði því upp einusinni og skemmdi spíss, hann reykti reyndar ekki eftir það, en ferlegt bank í mótornum þar til ég losaði róna rörinu á viðkomandi spíss

Re: 2.8 bank

Posted: 05.sep 2015, 21:08
frá ellisnorra
Það eru reyndar manual stilltar undirlyftur á y61 2.8. Held ég.

Re: 2.8 bank

Posted: 06.sep 2015, 10:11
frá Startarinn
eftir smá leit á netinu sé ég að báðar útgáfurnar virðast hafa verið til, það voru allavega vökvaundirliftur í minni vél, heddið á henni var eftirmarket hedd fyrir Patrol.

Stillanlegu undirlyfturnar, sýnist mér eftir stutta leit, eiga að vera stilltar með skífum, ég myndi kippa ventlalokinu af og mæla ventlabilið til að útiloka það