Síða 1 af 1

Patrol grindur

Posted: 18.jan 2011, 21:42
frá TF3HTH
Veit einhver hér hvort boddífestingar á grind séu á sama stað fyrir 97 og eldri vs. 98 og nýrri? Möo, passar eldra boddý á nýrri grind?

-haffi

Re: Patrol grindur

Posted: 18.jan 2011, 21:50
frá jeepcj7
Ég kannast við einn sem stóð í svona boddý flutningum og hann sagði að allar boddý festingar væru á sama stað milli 89-97 og 98+

Re: Patrol grindur

Posted: 19.jan 2011, 00:09
frá Kalli
TF3HTH wrote:Veit einhver hér hvort boddífestingar á grind séu á sama stað fyrir 97 og eldri vs. 98 og nýrri? Möo, passar eldra boddý á nýrri grind?

-haffi

Svo gæturu hringt í Kidda Bergs á Selfossi S:8924030

kv, Kalli

Re: Patrol grindur

Posted: 19.jan 2011, 20:25
frá TF3HTH
Takk fyrir það.

-haffi

Re: Patrol grindur

Posted: 20.jan 2011, 12:25
frá GudniPall
Sælir

Miðað við það sem ég hef séð virðist þetta allt vera eins. Ég á sjálfur 89-97 bíl og svo hef ég verið mikið í kringum 2005 og 2006 bíla. Nýjasta grindinn virðist líka vera nánast eins, mótórfestingar eru væntanlega eitthvað öðruvísi, það er auðvitað önnur vél og skipting, svo er komið ef ég man þetta rétt krumpusvæði í grindina fremst. En rörin sem liggja þvert í grindinni virðast vera eins, sæti fyrir boddýpúða, gormaskálar og demparafestingar, olíutankur og t.d. pústfestingin aftast vinstramegin virðist allt vera eins.

Endilega leiðréttið þetta ef þið þekkið þetta betur.

Kv. Guðni