Síða 1 af 1

Nissan Terrano 2,7 TDI vesen

Posted: 27.aug 2014, 19:21
frá Jeppelus
Sælir heiðursmenn og konur, mér vantar smá aðstoð varðandi Terrano sem mér áskotnaðist í skiptum

fyrst og fremst er það airbag ljósið blikkar nonstop og flautan virkar ekki en hef þó farið í gegnum öryggi og undir sæti og virðist það vera í lagi svo hvað er að valda því að þetta sé?

og hitt er að hvað þessi slanga er, virðist vera að það sé búið að setja tappa í endann en hún lafir þó niður á milli framdekkja
Image

Re: Nissan Terrano 2,7 TDI vesen

Posted: 27.aug 2014, 20:21
frá olei
Það getur margt verið að sem orsakar air-bag ljós, helst að fá tölvulestur á bílinn til að átta sig á því hvað þar er í gangi. Flautan sjálf getur verið biluð, kolið í stýrinu búið (aldrei spáð í þann búnað á Terrano) eða vírar í sundur.

Rektu bara hvert slangan liggur, það leynir sér varla þegar þú finnur upptökin. Sýnist hún sverari en öndunarslangan á framdrifinu en þetta gæti samt verið hún. Annar möguleiki er að þetta sé slanga fyrir pissið á framljósin.

Re: Nissan Terrano 2,7 TDI vesen

Posted: 27.aug 2014, 21:40
frá Freyr
Air bag og flauta bilað bendir sterklega til þess að klukkuspírallinn í stýristúpunni sé farinn í sundur.

Re: Nissan Terrano 2,7 TDI vesen

Posted: 27.aug 2014, 22:12
frá Jeppelus
skoða þetta, takk fyrir svör