Síða 1 af 1
Patrol virðist slá sig út úr gír
Posted: 12.okt 2013, 14:19
frá DanniGutt
Sælir ég á patrol sem fer í útslátt ef maður er að keyra hann ef maður er til dæmis að fara keyra upp brekku og maður ætlar aðeins að bæta við gjöfina þá gerist ekki neitt en þetta gerist ekkert alltaf samt og ég er að velta fyrir mér hvort að þetta sé eitthvað sem tengist þrælnum í kassanum eða hvort ég þurfi að fara að læra keyra bíl upp á nýtt... ef það er einhver sem kannast við þetta þá þætti mér vænt um að fá einhverja skýringu á þessu.
Kv. Daníel
Re: Patrol virðist slá sig út úr gír
Posted: 12.okt 2013, 14:29
frá Izan
Sæll
Ég held að þú þurfir að lýsa þessu betur því að ef þú stígur á gjöfina á Patrol upp brekku er bara eðlilegt að það gerist ekki neitt og það kemur gírkassanum eða kúplingunni ekkert við heldur því að hann er svo haugamáttlaus.
Ef hann hrekkur úr gír t.d. við mikil átöt er kassinn orðinn lélegur eða ónýtur. Það myndi lýsa sér þannig að það kæmi slynkur og snúningurinn á vélinni færi upp fyrir öll skynsemismörk meðan þú héldir olíugjöfinni í botni. Ef þrællinn væri ekki að vinna sína vinnu myndi kúplingin annaðhvort ekki tengja eða sleppa. Ef kúplingin er orðin léleg þá snuðað hún og þá rýkur vélin upp í snúning en bíllinn eykur ekki ferðina eins og hann ætti að gera.
Kv Jón Garðar
Re: Patrol virðist slá sig út úr gír
Posted: 12.okt 2013, 14:53
frá LFS
eg á til kassa handa þer ef það er málið á slikk
Re: Patrol virðist slá sig út úr gír
Posted: 12.okt 2013, 15:41
frá StefánDal
Er hann boddýhækkaður hjá þér?
Re: Patrol virðist slá sig út úr gír
Posted: 13.okt 2013, 15:21
frá DanniGutt
Hann er hækkađur á boddýi já
Re: Patrol virðist slá sig út úr gír
Posted: 13.okt 2013, 17:01
frá StefánDal
Rífðu þá gúmmíið og teppið frá innan í bíl og athugaðu hvort stöngin sé að rekast í boddýyið.
Ef svo er þá myndi ég athuga hvort að allar boddýfestingar séu í lagi. Hvort boddýið sé farið að hreyfa sig á grindinni.
Re: Patrol virðist slá sig út úr gír
Posted: 13.okt 2013, 17:07
frá gamli
sæll komdu bara í heimsókn ef þú ert ekki búin að finna útur þessu ennþá og förum bara smá prufu rúnnt hljótum að fynna útúr þessu í sameiningu það er nú ekki langt á milli okkar