Síða 1 af 1
Líftími vélar í Patrol 2,8
Posted: 16.júl 2013, 18:40
frá doolafs
Er að spá í 98 Patrol sem er ekinn 320þ, nýbúið að skipta um hedd og tímareim.
Sýnist viðhald vélarinnar vera í fínu lagi en er að hafa áhyggjur af líftíma hennar.
Væri fínt að fá einhverjar upplýsingar um þessar véla
Re: Líftími vélar í Patrol 2,8
Posted: 16.júl 2013, 19:13
frá jeepson
Þá myndi ég ekki hafa neina áhyggjur. Þetta eru fínar vélar ef að það er bara passað uppá kælinguna. Og hedd vandamál má koma í veg fyrir með góðri kælingu og skipta um kælivökva einu sinni á ári, og passa vel uppá að vatnsdælur séu ekki orðnar útkeyrðar. Það er maður sem sagði mér að það væri mjög sterkur kjallari í 2,8. Ég sel það ekki dýrara en ég keypti það.
Re: Líftími vélar í Patrol 2,8
Posted: 16.júl 2013, 22:17
frá doolafs
ok, takk fyrir þetta
Re: Líftími vélar í Patrol 2,8
Posted: 25.sep 2013, 20:45
frá fritz82
Er vatnsdælan á tímareim eða viftureim í 2.8 Y 60 bílnum :) ?
Re: Líftími vélar í Patrol 2,8
Posted: 25.sep 2013, 20:47
frá RunarG
vatnsdælan er á viftureim í 2.8
Re: Líftími vélar í Patrol 2,8
Posted: 25.sep 2013, 21:24
frá flækingur
vatnsdælan er á viftureim ekki tímareim. er það allavega í mínum og þeim sem ég hef séð í húddið á
Re: Líftími vélar í Patrol 2,8
Posted: 26.sep 2013, 07:35
frá naffok
Hvernig er með ryðbolla sem myndast ofan á blokkinni, kannast menn ekkert við að það komi fyrir þessar vélar. Veit um svoleiðis dæmi og heyrði eitthvað minnst á að þetta væri amk. ekki einsdæmi
Kv Beggi
Re: Líftími vélar í Patrol 2,8
Posted: 26.sep 2013, 10:01
frá nobrks
Víst allir eru svona jákvædir, thá ætla ég ad vera súri gaurinn og benda á ad thad eru deildar meiningar um endingu og ágæti 2,8 Patrols mótor.
Sumir eru stanslaust med thetta í høndunum, en adrir ekki. Virdist samt endast betur í óbreyttum bílum ...eftir thví sem madur hefur heyrt og lesid.
Re: Líftími vélar í Patrol 2,8
Posted: 26.sep 2013, 12:30
frá -Hjalti-
Búinn að keyra 53.000km á 2.8 mótor án nokkurs vandamáls , reyndar hætti altenator að hlaða en annað er það ekki.
Bíllinn er alltaf á 44"og vélini er ekki hlíft í vetrarferðum
Re: Líftími vélar í Patrol 2,8
Posted: 26.sep 2013, 13:33
frá kjartanbj
Ertu búin að keyra runnerin 53þ á hva 18-19 mánuðum ? svaka keyrirðu
Re: Líftími vélar í Patrol 2,8
Posted: 26.sep 2013, 14:09
frá -Hjalti-
kjartanbj wrote:Ertu búin að keyra runnerin 53þ á hva 18-19 mánuðum ? svaka keyrirðu
23 mánuðum
mér finnst 2000km + á mánuði ekki mikið
Re: Líftími vélar í Patrol 2,8
Posted: 27.sep 2013, 00:51
frá Stebbi
Það sagði mér maður sem getur ekki logið að þetta væri sjálfsagt einhverjar best heppnuðu díselvélar sem hafa verði framleiddar.
Getur það verið satt ??
Re: Líftími vélar í Patrol 2,8
Posted: 27.sep 2013, 01:21
frá StefánDal
Stebbi wrote:Það sagði mér maður sem getur ekki logið að þetta væri sjálfsagt einhverjar best heppnuðu díselvélar sem hafa verði framleiddar.
Getur það verið satt ??
Alveg satt. Allt þetta slæma umtal er í rauninni samsæri sem byrjaði árið 1993 á stofnfundi Land Cruiser 80 eigenda.
Re: Líftími vélar í Patrol 2,8
Posted: 27.sep 2013, 08:05
frá Stebbi
StefánDal wrote:Stebbi wrote:Það sagði mér maður sem getur ekki logið að þetta væri sjálfsagt einhverjar best heppnuðu díselvélar sem hafa verði framleiddar.
Getur það verið satt ??
Alveg satt. Allt þetta slæma umtal er í rauninni samsæri sem byrjaði árið 1993 á stofnfundi Land Cruiser 80 eigenda.
Alveg rétt, getur ekki verið að Páll Magnússon ætli að sýna okkur heimildarmynd um þetta mál í næsta mánuði á ríkismiðlinum.
"Truth undiscovered: The Nissan RD28 story"
Re: Líftími vélar í Patrol 2,8
Posted: 27.sep 2013, 10:20
frá StefánDal
Stebbi wrote:StefánDal wrote:Stebbi wrote:Það sagði mér maður sem getur ekki logið að þetta væri sjálfsagt einhverjar best heppnuðu díselvélar sem hafa verði framleiddar.
Getur það verið satt ??
Alveg satt. Allt þetta slæma umtal er í rauninni samsæri sem byrjaði árið 1993 á stofnfundi Land Cruiser 80 eigenda.
Alveg rétt, getur ekki verið að Páll Magnússon ætli að sýna okkur heimildarmynd um þetta mál í næsta mánuði á ríkismiðlinum.
"Truth undiscovered: The Nissan RD28 story"
Það passar. Í myndinni er meðal annars fjallað um hóp skæruliða sem gerðir voru út af Toyota umboðinu. Þetta voru tvítugir strákar sem skriðu undir Patrol bifreiðar um miðjar nætur og settu haframjöl í vatnskassana. Í staðinn fengu þeir 40% afslátt af varahlutum hjá Toyota.
Það þarf sjálfsagt ekki að taka það fram að þeir voru allir úr Kópavoginum.
Re: Líftími vélar í Patrol 2,8
Posted: 27.sep 2013, 17:32
frá Stebbi
Einhverjir liðsmenn úr Fræbblunum voru liðþjálfar í þessari hreyfingu Toyota manna, enda stutt að fara úr Pönkinu í skipulagða hryðjuverkastarfsemi. Ótrúlegt hvað lög og regla fór alveg framhjá Nýbýlaveginum á þessum tíma.
Sagt er að það hafi verið deild af hiluxum sem sá um að draga allar bilaðar Toyotur inn í höfuðstöðvarnar í skjóli nætur og þeir hafi allir verið komnir með RD28T afþví að gamli 2.4 dugaði ekki í vinnu. Seinna meir var þessum bílum breytt á 38" fyrir gæðinga í P.Sam og þaðan koma ALLAR frægðarsögur um dugnað og drifgetu Hilux á fjöllum.
Getur það verið að þetta sé satt ???
Re: Líftími vélar í Patrol 2,8
Posted: 27.sep 2013, 17:44
frá StefánDal
Ótrúlega satt
Re: Líftími vélar í Patrol 2,8
Posted: 27.sep 2013, 19:54
frá jeepson
HAHAHAHAHA. Þið eruð frábærir strákar :D
Re: Líftími vélar í Patrol 2,8
Posted: 27.sep 2013, 20:38
frá Izan
Menn að fá sér??
Re: Líftími vélar í Patrol 2,8
Posted: 27.sep 2013, 20:40
frá jeepson
Izan wrote:Menn að fá sér??
Ekki fara að skemma þetta Jón. :)