Sælir
Nissan Navara bifreiðin mín er 1999 árgerð og nú er svo komið að slit í millistöng í stýrisganginum er orðið óþægilega mikið. Þessi bíll er jú á klöfum og er viðkvæmur fyrir því að hann sé skrúfaður upp því þá fer hann að éta upp liðina í þessari stöng. Mér er illa við að endurnýja þessa stöng því að þetta er viðvarandi vandamál þegar bíllinn er skrúfaður upp á klöfum og ekki ætla ég mér að skrúfa hann niður.
Hafa menn heyrt af einhverri breytingu á þessu? Það er einn séns að setja hásingu undir hann að framan. Annar séns er að kaupa hluti frá fyrirtæki sem heitir Calmini og er hægt að girða fyrir þetta vandamál með þeim hlutum.
Mig langar samt að kanna hvort menn hafa heyrt af öðrum lausnum.
Navara, millistöng í stýrisgangi
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 0 gestir