hvað þarf pattinn stórt pust ?
Posted: 12.júl 2010, 07:46
frá LFS
eg ætla að fara setja nytt púst undir bilinn hja mer og er að pæla i að setja 3" púst á maður annars ekki að fara i 3" eða er 2 1/2" alveg nóg ? og hafa menn bara haft það opið aftur úr þarf ekki að vera nein mótstaða eða einhvað slikt ? og einnig hvar get eg fengið eða latið smiða fyrir mig 3 raða vatnskassa ?það væri einnig gaman að heyra hvort menn hefðu einhverjar hugmyndir um hvernig mætti auka kraftinn i 2.8 velinni !
Re: hvað þarf pattinn stórt pust ?
Posted: 12.júl 2010, 08:02
frá AgnarBen
sælir
Flestir setja 3" púst í 2.8 lítra bílinn en ég hef svo sem heyrt að sumir telji 2,5" nóg. Ég var með 3" í mínum hérna í denn og það virkaði fínt, fann greinilegan mun fyrir og eftir. Ég var með opið púst (bara ein múffa á rörinu). Ég lét setja þetta undir hjá Einari áttavillta á Smiðjuveginum en það var áður en hann fór að selja flugelda ;-) Ég veit að þetta kerfi er ennþá undir bílnum nú 7 árum seinna. BJB eru líka góðir í þessum pústkerfum.
Ég hef verslað við Stjörnublikk þegar kemur að vatnskössum, þeir gera upp kassa og setja 3-raða element í, fagmenn þar á bæ.
kv
AB