Síða 1 af 1

Breyttur TerranoII í hraununum hfj

Posted: 16.jún 2012, 23:17
frá íbbi
hefur vakið athygli mína að orðið í ansi langan tíma hefur staðið 96-99 Terrano í hraununum í hfj, rétt hjá bílaspítalanum,

bíllinn er vínrauður, 38" breyttur með hásingu að framan, og m.a normið lítið ryðgaður. ég veit ekki hvað hann er búinn að vera þarna lengi, en það er orðið ansi langur tími

virðist helv verklegur bíll. þekir einhver til hanns?

Re: Breyttur TerranoII í hraununum hfj

Posted: 17.jún 2012, 00:56
frá Lada
Sá sem á hann er með verkstæði þarna rétt hjá. Hann hefur átt þennan bíl lengi, en ég veit ekki hvort hann hefur gefist upp á honum. Hugsa að þú gætir fengið bílinn fyrir sanngjarnt verð ef þú falaðist eftir honum.

Kv.
Ásgeir

Re: Breyttur TerranoII í hraununum hfj

Posted: 17.jún 2012, 11:36
frá íbbi
það væri nú reyndar eflaust gamann að eiga hann. og forvitnilegt að vita hvaða prís hann fengist ´á

Re: Breyttur TerranoII í hraununum hfj

Posted: 17.jún 2012, 11:37
frá íbbi
veistu hvað er að bílnum?

Re: Breyttur TerranoII í hraununum hfj

Posted: 17.jún 2012, 21:59
frá íbbi
leist líka vel á hásinguna undir honum að framan, er forvitin að vita hvort það væri hægt að hafa þetta set upp í lægri bíl

Re: Breyttur TerranoII í hraununum hfj

Posted: 18.jún 2012, 13:14
frá Sævar Örn
Settti eitt sinn límmiða í rúðuna á fallegri súkku sem stóð á sama stað, keypti hana einmitt af verkstæðiseiganda þarna í grenndinni á 25.000 krónur þannig það er nú kannski reynandi að ná sambandi við eigandann á þennan hátt. Setja áberandi miða á rúðuna.-

Re: Breyttur TerranoII í hraununum hfj

Posted: 18.jún 2012, 19:15
frá Lada
Sæll

Ég veit í raun ekkert um þennan bíl. Ég veit bara hver á hann og ég hef setið í honum í einni þjóðvegarferð fyrir einum 10 árum síðan.

Kv.
Ásgeir