Er með Patrol ´99 með 2,8 l vélinni. Er að hugsa um að setja tvígengisolíu í díselolíuna til að liðka olíuverkið (það er smá hökt í vélinni á 3000-3300 snúningum). Hvað er mikið af tvígengisolíu (eða annarari betri ? )sett út í fullan tank (90 lítra)?
kv
Þorgeir
Tvígengisolía í dísel
-
- Póststjóri
- Innlegg: 2493
- Skráður: 31.jan 2010, 17:44
- Fullt nafn: Hörður Bjarnason
- Bíltegund: 1988 Ford Econoline
Re: Tvígengisolía í dísel
Vitringurinn Leó M Jónsson segir að tvígengisolía sem íblöndunarefni í dísel geri ekkert fyrir vélar nema að auka mengun.
Sendu honum fyrirspurn, ég hef gert það með góðum árangri.
http://leoemm.com/
Sendu honum fyrirspurn, ég hef gert það með góðum árangri.
http://leoemm.com/
Re: Tvígengisolía í dísel
..
Síðast breytt af HaffiTopp þann 20.jún 2014, 17:26, breytt 1 sinni samtals.
Re: Tvígengisolía í dísel
Sæll
Settu 1-2 lítra það ætti ekki að skipta máli, 1 líter af mótorolíu eða sjálfskiptivökva skiptir ekki máli.
Ég myndi aldrei trúa orði af því sem Leó M Magnússon segir. Maður sem segir að Patrol henti sérstaklega illa til breytinga en aftur Cherokee og Musso henti gríðarlega vel er asni og málaður í nákvæmlega sömu litum og fyrirtækin sem borga honum peninga.
Auðvitað er ég sammála því að skipt sé um hráolíusíur af og til, árlega kannski, og svo eru sumar nissan vélar viðkvæmar fyrir því að notuð sé Nissan olíusía. Ég prófaði einu sinni að eiga 2.5 nissan turbo sem hagaði sér svona og þá var komið einhvert kusk og ógeð í netsíu sem var ofaní olíuverkinu og svelti mótorinn á hærri snúning en 3000-3500. Hann snérist bara ekki hraðar.
Kv Jón Garðar
P.s. það er kannski ekki ástæða til að setja olíuna akkúrat þegar þú ferð með bílinn í skoðun en smá slurkur af olíu af og til er bara til bóta.

Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 0 gestir