2" hækkun Patrol Y61

User avatar

Höfundur þráðar
Alpinus
Innlegg: 221
Skráður: 01.feb 2010, 13:00
Fullt nafn: Hans Magnússon
Bíltegund: Lexus LX470

2" hækkun Patrol Y61

Postfrá Alpinus » 21.feb 2010, 20:07

Sælir
Ég er algjör viðvaningur þegar kemur að þessum hlutum svo það sé alveg á hreinu.

Minn bíll er á 3cm klossum og sem slíkur þarf ekki að lengja í eða breyta neinu öðru. Ekki satt?

Nú langar mig að setja undir hann 2" OME gorma og þá skilst mér að þurfi að breyta einhverju meira eins og td lengri ballnsstangarfestingar og fl. .... en hvað er þetta fl sem þarf að gera til að þetta verði nú allt saman í lagi?

Önnur spurning: Hvenær telst jeppi breyttur formlega og þarf breytingaskoðun?

Með fyrirfram þökkum.



User avatar

Höfundur þráðar
Alpinus
Innlegg: 221
Skráður: 01.feb 2010, 13:00
Fullt nafn: Hans Magnússon
Bíltegund: Lexus LX470

Re: 2" hækkun Patrol Y61

Postfrá Alpinus » 23.feb 2010, 13:12

... 'silly me' ...gerði mér ekki grein fyrir að þetta væri spjallvefur fyrir óbreytta jeppa;) Ég biðst afsökunar á þessum mistökum.

User avatar

Einar
Innlegg: 319
Skráður: 01.feb 2010, 00:32
Fullt nafn: Einar Steinsson
Staðsetning: Austurríki
Hafa samband:

Re: 2" hækkun Patrol Y61

Postfrá Einar » 23.feb 2010, 13:59

Þetta er spjallvefur fyrir allt jeppa og ferða áhugafólk ,hvort sem jepparnir eru breyttir eða óbreyttir.

User avatar

Járni
Stjórnandi
Innlegg: 1397
Skráður: 30.jan 2010, 22:43
Fullt nafn: Árni Björnsson
Bíltegund: Land Rover
Staðsetning: Akureyri
Hafa samband:

Re: 2" hækkun Patrol Y61

Postfrá Járni » 23.feb 2010, 17:10

Sæll vertu. Sjálfur myndi ég ekki hafa áhyggjur af jafnvægisstöngunum heldur henda þeim í ruslið.
Það er þó hætt við því að þú þurfir að fara að lengja í dempurum og athuga með bremsuslöngur. Einnig er spindilhallinn orðinn svolítið slappur við þetta svo það er hætt við því að bíllinn verði leiðinlegur í stýrinu.
Hvað ertu að breyta fyrir stór dekk? Kannski einfaldast að skera bara örlítið úr?

Með breytinguna, þá held ég að þú þurfir að láta breytingaskoða ef dekkin fara 10% frá skráðri dekkastærð. Endilega leiðréttið þetta ef ég fer með rangt mál.
Land Rover Defender 130 38"

User avatar

Höfundur þráðar
Alpinus
Innlegg: 221
Skráður: 01.feb 2010, 13:00
Fullt nafn: Hans Magnússon
Bíltegund: Lexus LX470

Re: 2" hækkun Patrol Y61

Postfrá Alpinus » 23.feb 2010, 21:51

...þetta var nú bara smá kaldhæðni í mér þarna áðan ...ekkert illa meint;)

Járni takk fyrir svarið.
Ég er bara að spá hvort ég þurfi að breyta miklu fyrir 37" dekk (9.00R16 ekki breið). Ég var með 35"(315/75R16) og það virtist vera nóg pláss eftir en það þyrfti kannski bara að skera eitthvað úr, eins og þú nefndir. Bara að velta þessu fyrir mer.

Af hverju segirðu að henda jafnvægisstöngum, hvernig verður bíllinn þá í akstri og er það alveg leyfilegt?

Kkv

User avatar

gislisveri
Stjórnandi
Innlegg: 1069
Skráður: 30.jan 2010, 23:08
Fullt nafn: Gísli Sverrisson
Bíltegund: Ford Transit
Staðsetning: Mosó
Hafa samband:

Re: 2" hækkun Patrol Y61

Postfrá gislisveri » 23.feb 2010, 23:46

Bíllinn verður ögn svagari í akstri, en varla til að tala um í Patrol m.v. mína reynslu.
Það er ekkert sem skyldar þig til að hafa jafnvægisstöngina í bílnum.

User avatar

Járni
Stjórnandi
Innlegg: 1397
Skráður: 30.jan 2010, 22:43
Fullt nafn: Árni Björnsson
Bíltegund: Land Rover
Staðsetning: Akureyri
Hafa samband:

Re: 2" hækkun Patrol Y61

Postfrá Járni » 24.feb 2010, 00:04

Jafnvægisstangirnar fjarlægði ég þær ásamt öllum festingum. Það er fullkomlega löglegt, stangirnar eru ekki skoðunaratriði nema þær séu til staðar.
Vissulega verður hann svagari við þetta, sérstaklega þegar hækkunin verður meiri. Annars er auðvelt að lengja endana, ég hafði bara engan áhuga á því að halda þeim við, endarnir eru soddan rusl.

Breytingu fyrir þessi dekki þekki ég ekki sérstaklega og ef ætlunin er að jéppast á honum mæli ég hiklaust með að fara beint í 38".
Ef þú ætlar að bæta þessum gormum ofan á klossana ertu kominn með um 8-9cm hækkun. Það er rétt undir hefðbundinni hækkun fyrir 38" sem er yfirleitt um 10cm. Án þess að eiga við stífufestingarnar er spindilhallinn orðinn of lítill.
Ég myndi reyna að fá svona dekk lánuð til athugunar og komast að því hvað mikið vantar upp á og meta stöðuna í framhaldi af þvi.
Land Rover Defender 130 38"

User avatar

Höfundur þráðar
Alpinus
Innlegg: 221
Skráður: 01.feb 2010, 13:00
Fullt nafn: Hans Magnússon
Bíltegund: Lexus LX470

Re: 2" hækkun Patrol Y61

Postfrá Alpinus » 24.feb 2010, 00:17

Fínar upplýsingar, ég ætla að skoða þetta betur. Ef maður fer í þetta á annað borð er alveg eins gott að fara kannski í 38" og vera þá klár í flest.

Takk fyrir!

User avatar

gislisveri
Stjórnandi
Innlegg: 1069
Skráður: 30.jan 2010, 23:08
Fullt nafn: Gísli Sverrisson
Bíltegund: Ford Transit
Staðsetning: Mosó
Hafa samband:

Re: 2" hækkun Patrol Y61

Postfrá gislisveri » 24.feb 2010, 09:47

Það er nú lexía sem ég er enn að læra en hef fulla trú á, alltaf að gera ráð fyrir stærri dekkjum en maður ætlar að nota, amk. þegar kemur að úrklippingum og svoleiðis. Það endar yfirleitt með sparnaði tíma og útgjalda.
Svo er varla stórmál að fá lánaðar stærri túttur til mátunar.


Til baka á “Nissan”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur