Túrbína í 99 árg Patrol 2,8


Höfundur þráðar
steinarxe
Innlegg: 195
Skráður: 09.mar 2010, 21:16
Fullt nafn: Steinar Amble Gíslason

Túrbína í 99 árg Patrol 2,8

Postfrá steinarxe » 14.des 2010, 00:55

Jæja þá er patrol slappur. Það lýsir sér þannig að bíllinn er kraftlaus og töluvert blísturs hljóð. Vorum að skoða þetta í dag og ofan á túrbínunni er svona smá járnpungur sem kemur grönn slanga úr öðrum endanum og armur úr hinum endanum,við settum bílinn í gang og þöndum hann vel en aldrei haggaðist þessi armur,ég fór með hendina þarna niður og reyndi að hreyfa en það var ekki séns(að vísu ekki þægilegt að komast að).Síðan fórum við í hiluxinn hjá mér og viti menn,við ákveðinn snúning á mótornum þá spýttist armurinn á þeirri bínu út og lítið mál að hreyfa með hendinni. Við erum búnir líka að fara yfir allar hosuklemmur og skoða hosurnar sjálfar og það virðist vera í lagi,veit reyndar að ekki þarf stórt gat til að allt sé í steik. Er séns að það sé einfaldlega stífla í þessari grönnu slöngu sem kemur úr pungnum?Er þessi pungur ekki einhver vakúm stjórnun? Endilega koma með einhver ráð og fróðleik um þetta ,væri alveg yndislegt að sleppa við að rífa bínuna úr,lítur ekki út fyrir að vera skemmtilegt lyftulaus:)




danfox
Innlegg: 48
Skráður: 01.feb 2010, 06:19
Fullt nafn: Sigurður Már Ólafsson
Bíltegund: Lexus IS 250

Re: Túrbína í 99 árg Patrol 2,8

Postfrá danfox » 14.des 2010, 06:04

Þessi armur stjórnar " waste gate " ventlinum, hann stendur mjög sennilega fastur opin sem skýrir mikið blístur og kraftleysi.

Kv Siggi M

User avatar

Tómas Þröstur
Innlegg: 330
Skráður: 19.mar 2010, 10:03
Fullt nafn: Tómas Þröstur Rögnvaldsson

Re: Túrbína í 99 árg Patrol 2,8

Postfrá Tómas Þröstur » 14.des 2010, 07:36

Túrbína byggir ekki upp þrýsting að neinu ráði nema undir álagi og ventilinn á ekki að hreyfast þegar bíllinn stemdur á gólfinu. Blístur þýðir óþétta þrýstilögn einhversstaðar.


Til baka á “Nissan”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur