Stærstu dekk sem ég kem undir með 35" köntum

User avatar

Höfundur þráðar
arnijr
Innlegg: 86
Skráður: 06.apr 2010, 23:46
Fullt nafn: Árni Júlíus Rögnvaldsson
Bíltegund: Mitsubishi Pajero

Stærstu dekk sem ég kem undir með 35" köntum

Postfrá arnijr » 07.apr 2010, 22:57

Sælir,

ég er með langan 1998 2.8TDI sem er með 35 tommu köntunum. Búinn að hækka hann um 40mm á fjöðrun og hann er náttúrulega eins og aðrir 2.8 og 3500 hækkaður á boddí frá framleiðanda. Síðan er ég búinn að skera aðeins úr aftan við framdekk. Hann er núna á 33x12.50 og planið var alltaf að setja undir hann 35x12.50. Síðan var ég upp á jökli í 44" Cruiser og er orðinn veikur að koma snjófærum dekkjum undir bílinn. Hafði alltaf hugsað mér að hækka bílinn á boddí, um allavega svona 50mm og þá mögulega rífa fjöðrunarhækkunina undan. Núna er ég hins vegar farinn að hugsa um að halda henni og setja þá 36x14.50 eða 37x14.50 undir.

Spurningin er þá, kemst þetta undir, standa þau langt undan köntum, hvað er best að hækka hann mikið, hvaða felgur er best að nota til að þetta standi ekki of langt út en sé samt ekki að rekast í grind.

Í framhjáhlaupi, hvaða dekk á maður að miða á sem vetrardekk, í þessum stærðum, ef þau komast þá undir? Ætlaði að hafa hann bara á 35x12.50, BFG AllTerrain eða einhverju slíku, á sumrin.

Stórt spurt, en ég hef fulla trú á að einhverjir hér viti allt um þetta.


1998 Mitsubishi Pajero GLS 2.8TDI


maxi
Innlegg: 88
Skráður: 23.mar 2010, 12:03
Fullt nafn: Magnús Pálmarsson
Bíltegund: 2007 Navigator

Re: Stærstu dekk sem ég kem undir með 35" köntum

Postfrá maxi » 07.apr 2010, 23:04


User avatar

Höfundur þráðar
arnijr
Innlegg: 86
Skráður: 06.apr 2010, 23:46
Fullt nafn: Árni Júlíus Rögnvaldsson
Bíltegund: Mitsubishi Pajero

Re: Stærstu dekk sem ég kem undir með 35" köntum

Postfrá arnijr » 07.apr 2010, 23:10

Jú takk, þetta hjálpar, en þetta er ekki sama boddí og ekki sömu kantar. Ég er eins og fleiri með takmarkaða peninga milli handanna og ofan á allt annað eru stóru kantarnir ekki á dagskrá í bili. Ef þeir væru á dagskrá þá færu 38" beint undir en þeir kosta 100 þús og svo málningu.
1998 Mitsubishi Pajero GLS 2.8TDI


Til baka á “Mitsubishi”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 2 gestir