Síða 1 af 1
Ódýrasta vélaolían
Posted: 14.sep 2011, 14:31
frá halldorm
Sælir snillingar
Er að byrja aftur í jeppaútgerðinni og til að spara aurinn, þá ætla ég að smyrja og sinna þessu std. viðhaldi sjálfur.
Hvar fær maður ódýrustu vélaolíuna nú til dags? Mér finnst alveg brjálað að kaupa 4 lítra brúsa á 7 - 10 þús kr.
kveðja
Halldór
Re: Ódýrasta vélaolían
Posted: 14.sep 2011, 17:23
frá Stebbi
Sá einhverja olíu í Hagkaup á þokkalegu verði, minnir að það hafi verið á 7-800kr líterinn.
Re: Ódýrasta vélaolían
Posted: 14.sep 2011, 17:33
frá JonHrafn
Minnir að það heiti comma í N1, undir þúskalli líterinn.
Re: Ódýrasta vélaolían
Posted: 14.sep 2011, 17:56
frá hobo
Ég keypti í vetur olíu í húsasmiðjunni skútuvogi, semi syntetíska á 3900 kall, 5 lítrar. Var rosa sáttur með það. Svo fór ég um daginn og þá var lítið sem ekkert til, fór tómhentur út. En kannski er hún komin aftur.
Re: Ódýrasta vélaolían
Posted: 14.sep 2011, 18:11
frá Einar
Ég hef alltaf haft illar bifur á ódýrum olíum, finnst mótorarnir verða skítugir og "skúmmaðir" að innan af þeim. Hef frekar reynt að kaupa góðar olíur og skipta sjaldnar. Góðar vélarolíur í dag þola vandræðalaust 20-30 þúsund km og jafnvel meira en á þeim tíma er svona ódýrt sull orðið löngu ónýtt og hættulegt fyrir vélina.
Re: Ódýrasta vélaolían
Posted: 14.sep 2011, 18:35
frá Sævar Örn
Ég kaupa mína olíu beint af tunnu hálf synþ 5-30 eða 10-40 eftir því hvað þú vilt hjá stráknum með
http://jlt.is á 2500 fyrir 5 lítra mjög ánægður með verð og gæði
Re: Ódýrasta vélaolían
Posted: 14.sep 2011, 18:43
frá hobo
Ég var búinn að gleyma honum, hann á pottþétt heima á neytendavaktinni.
Re: Ódýrasta vélaolían
Posted: 14.sep 2011, 23:50
frá halldorm
Sælir aftur
Takk fyrir frábærar upplýsingar. Ég heimsótti þá í AB varahlutum og fékk hálf synthetíska 10-40 olíu á 4.500 kall og svo 15% Atlantsolíu afslátt ofan á það. Fannst það bara góður díll.
Hitt verður klárlega undir hattinum þegar kemur að næstu smurningu.
kk
Halldór
Re: Ódýrasta vélaolían
Posted: 15.sep 2011, 09:40
frá HaffiTopp
Fara bara á næstu smurstöð með tómann 5 lítra brúsa og byðja þá um að dæla á hann fyrir ykkur. Olían er yfirleitt dýrari í brúsum heldur en beint af dælu, fólki er alltaf seldur brúsinn á einhvern 7-800 kall ;)
Mér myndi aldrei láta mér detta í hug að vera með vélarolíuna lengur en 15000 km. sama hversu góð hún væri. Sérstaklega þegar maður næði örugglega ekki að keyra meira en 10-12000 km. á ári og ég er að keyra miklu minna en það undanfarið.
Nota bílinn bara mjög lítið. En ég smurði hann síðast og skifti bæði um olíu og síu og setti á hann fullsynthetiska 5W40 olíu.
Næst ætla ég mér að skifta bara um olíu og láta síuna eiga sig. (Er á bensínbíl)
Kv. Haffi
Re: Ódýrasta vélaolían
Posted: 16.sep 2011, 11:07
frá Loffinn
epli og epli - olíur og olíur... hjómar eins en getur verið mikill munur á vörum/gæðum.
Við hjá AB erum einungis með góðar olíur og því ná verðin ekki undir allar aðrar olíur en þó flestar.Hér eru nokkur verðdæmi m/15% afslætti:10w/40 Platinum semi synthetic 5.l ... 3986kr
10w/40 Platinum semi synthetic 25.l ... 16991kr
10w/40 Platinum semi synthetic 200.l ... 119.719kr
5w/40 "longlife" fully synthetic 5.l ... 5856kr
5w/40 "longlife" fully synthetic 25.l ... 22942kr
10w/60 "motorsport" fully synthetic 1.l ... 1912kr
10w/60 "motorsport" fully synthetic 5.l ... 7607kr
Gírolía 75w/90 5.l ... 6400kr
Gírolía 75w/90 25.l ... 25492kr
Glussi 32 5.l ... 3392kr
Glussi 32 25.l ... 16987kr
Glussi 32 200.l ... 108012kr
svo koma þær bara í snyrtilegum umbúðum svo það er óþarfi að koma með eigin brúsa :)
Meira um það á
http://www.ab.is http://www.granvilleoil.com/products.php
Kveðjur
Loftur
Re: Ódýrasta vélaolían
Posted: 16.sep 2011, 17:11
frá frikki
Tékkið á oliunum frá poulsen. Valvoline marg lofuð olia.
www.valvolineeurope.comþarna hafið þið síðu sem segir ykkur allt um alla vökva sem eiga að fara á bílinn og magnið líka.
Re: Ódýrasta vélaolían
Posted: 16.sep 2011, 17:12
frá frikki
frikki wrote:Tékkið á oliunum frá poulsen. Valvoline marg lofuð olia.
http://www.valvolineeurope.comþarna hafið þið síðu sem segir ykkur allt um alla vökva sem eiga að fara á bílinn og magnið líka.
Farið í hnappinn (try it now)
Re: Ódýrasta vélaolían
Posted: 17.sep 2011, 00:28
frá Loffinn
Flott síða, auðvelt að sjá magnið sem fer á bíla...
En hver eru verðin á Valvoline?
kv.Loftur
Re: Ódýrasta vélaolían
Posted: 17.sep 2011, 13:07
frá Brjótur
Athyglisverð umræða, en langar að spyrja ykkur um olíu sem ég sá oft auglýsta í DV og heitir PETRONAS eins og formúluliðið, þessi aðili var að auglýsa líterinn á 590 kr en svo hef ég ekki séð þessa auglýsingu aftur, en ég sé nú rendar mjög sjaldan DV
þekkir einhver til málsins?
kveðja Helgi
Re: Ódýrasta vélaolían
Posted: 17.sep 2011, 13:25
frá joias
Þessi olía sem þú ert að spyrja um frá Petronas er frá félaga mínum sem tók 1 gám til prufu af 15w-40 fyrir diesel vélar og svo gírolíu, glussa og fleira fyrir vinnuvélar. Ég hef verið að selja þetta frá honum á síðunni minni jlt.is Þessi mótorolía er uppseld í tunnum en það er ennþá eftir í 5ltr. og 20ltr. brúsum. Semisynth. olía sem uppfyllir alla helstu staðla og er viðurkennd af framleiðendum. Ég hef notað þessa olíu á diesel bíla stóra sem smáa vandræðalaust, þetta er mjög góð olía.
Re: Ódýrasta vélaolían
Posted: 17.sep 2011, 13:33
frá Brjótur
Takk fyrir svarið og hvað er verðið á olíunni í 5ltr. og 20 ltr. ef ég má spyrja?
Re: Ódýrasta vélaolían
Posted: 17.sep 2011, 13:45
frá joias
5ltr. brúsi kostar 3.686kr M/VSK
20lt. brúsi kostar 11.369kr M/VSK
Kv. Jói
sími 853 3340
Re: Ódýrasta vélaolían
Posted: 18.sep 2011, 16:33
frá Kalli
Re: Ódýrasta vélaolían
Posted: 19.sep 2011, 14:28
frá Loffinn
já.... gleymdi þessari en hún er auðvitað líka til hjá AB-varahlutum.
15W/40 semi synthetic "Diesel Gold" 5.l ... 3399kr m/15% afslættinum.
:)
kv. Loftur