gaz69m wrote:er hægt að virkja þennan fjandans vax hólks drasl aftur eða hvar fæst þetta nýtt ( Bún að tala við heklu og ég hefði eins getað spurt hundin )
Ef hann er orðinn slappur þá á samt að vera hægt að hreyfa ákveðna stillikrúfu sem stjórnar öxulfærslunni þannig að þetta virkar þá.
Annars er þetta búnaður sem litlu máli skiptir fyrir virkni bílsins, eina sem þetta gerir er að stjórna gangi vélarinnar í kaldstarti, þ.e. mótorinn snýst aðeins hraðar meðan hann er kaldur svo þegar kælivatnið hitnar og vaxið með, þá slaknar á vaxinu og pinnin færist til baka sem veldur því að bíllinn gengur hægari lausagang.
Mér sýnist ég sjá á myndinni hér að ofan þessa stilliskrúfu sem þú getur þá skrúfað aðeins til og prufað hvort það breyti ekki lausagangi í kaldstarti.