Síða 1 af 1

Breyting á Pajero 99

Posted: 08.nóv 2010, 22:53
frá loftpreza
Sælir,Ég er með Pajero 99 og langar til að setjan hann á 38-44 er ekki allveg viss,
En ég var að velta fyrir mér hefur einhver hér gert þetta áður og gæti þá mögulega sagt mér í grófum dráttum hvað þarf að gera td fyrir 38"
Geri mér allveg grein fyrir því að 44" breyting er doldið meira en að segja það en manni langar alltaf í stærri dekk hehe :)
Líka hvaða hlutföll eru menn að setja í þessa bíla ef þeir eru á 38?
Ef einhveir á myndir af svona breytingum þá væri ég allveg til í að sjá,eða fá að koma skoða einhvern breyttan bíl.

Kv:Reynir.

Re: Breyting á Pajero 99

Posted: 10.nóv 2010, 11:45
frá loftpreza
Er enginn hér sem hefur breytt svona bíl?

Re: Breyting á Pajero 99

Posted: 10.nóv 2010, 11:56
frá HaffiTopp
..

Re: Breyting á Pajero 99

Posted: 10.nóv 2010, 12:52
frá dabbigj
Svona í grunninn hafa menn verið að taka lágmark 50mm boddýhækkun og uppí 10cm, skera svo auðvitað úr og nýjir kantar sem að eru nauðsynlegir til að fá skoðun á hann, svo þarf að lækka vatnskassann, hækka stuðarafestingar, það þarf að lagfæra aðeins millikassastöngina eftir þessar breytingar. Svo þarftu hraðamælisbreytingu, sjúkrapúða og slökkvitæki fyrir breytingarskoðun og svo er hásingarfærsla að aftan eitthvað sem að ég myndi sterklega mæla með.

Svo ef að þú ætlar í 44" væri best ef að þú myndir hásingarvæða bílinn að framan.

Svo ef að þú ætlar að gera þetta sjálfur er best að þú fáir að skoða einhvern vel breyttan bíl og fáir jafnvel einhvern með þér í þetta sem að kann til.

Re: Breyting á Pajero 99

Posted: 10.nóv 2010, 13:37
frá loftpreza
Hvað hafa menn verið að færa aftur hásingu mikið fyrir 38"?
Vitiði hvernig þessir bílar eru að koma út á 38"?
Ég ætla nú að gera þetta allt sjálfur er búinn að breytta nokkrum,en alltaf gott að vita hvernig aðrir hafa gert þetta.

Kv:Reynir

Re: Breyting á Pajero 99

Posted: 12.nóv 2010, 13:32
frá Stebbi
2-3cm er nóg miðað við 50mm boddylift