Síða 1 af 1

SOS !!! balance reim í 2,5 TDI mmc

Posted: 13.okt 2010, 22:25
frá fannar79
Er óhætt að fjærlæga balance reim í þessari vél, hvaða afleiðingar hefur það ? Mótorinn er 2002 árg.

Re: SOS !!! balance reim í 2,5 TDI mmc

Posted: 13.okt 2010, 23:18
frá Járni
Það ætti nú að vera óhætt, en þú mátt þá búast við leiðinda hristingi. Afhverju viltu gera það?

Re: SOS !!! balance reim í 2,5 TDI mmc

Posted: 14.okt 2010, 21:20
frá DABBI SIG
Það á að vera í góðu lagi.
Tolli í hafnarfirðinum sem mikið hefur verið í 2.5 MMC vill ekki sjá þessar reimar enda eiga þær það til að slitna langt á undan aðalreiminni og rústa þannig mögulega tímanum á vélinni.
Hún var tekin úr hjá mér og það finnst enginn munur á bílnum, ekki hristingur eða titringur sem hægt er að taka eftir.

Re: SOS !!! balance reim í 2,5 TDI mmc

Posted: 14.okt 2010, 23:02
frá Þorri
þarf ekki að festa ballanceásinn ef reymin er tekin mig mynnir að ég hafi heyrt það einhversstaðar

Re: SOS !!! balance reim í 2,5 TDI mmc

Posted: 15.okt 2010, 20:22
frá fannar79
Mér fannst annar ásinn vera svolítið stífur þegar að ég raðaði mótornum saman
hjá mér og var bara að spá í að taka reimina.
En þegar að ég reif framan af mótornum til að taka reimina þá kom í ljós að
hún var slitin og ég fjarlægði hana og ég finn engan mun á bílnum:)