Síða 1 af 1

vélaskipti í 2.8 diesel pajero

Posted: 26.okt 2013, 19:40
frá thecrow
Sæl öllsömul,
ég er í smá brasi var að skipta um vél í 2000 árgerð af 2.8l diesel pajero,
og að sjálfsögðu fer græjan ekki í gang, þannig að ég spyr hvað þarf að fylgja mótornum úr gamla bílnum
svo að antitheft systemið sé ekki á það hlýtur að vera einhver kubbur eða eitthvað.

Kv ELLI

Re: vélaskipti í 2.8 diesel pajero

Posted: 26.okt 2013, 19:43
frá hobo
Kemur olía að spíssum þegar þú startar?

Re: vélaskipti í 2.8 diesel pajero

Posted: 26.okt 2013, 20:00
frá thecrow
Nei það kemur ekki olía það eru 2 ádrepara spólur á verkinu og mér skilst að önnur sé kóðuð
svo það er spurning hvort það sé einhver kubbur einhversstaðar eða hvort þettað sé í svissinum,

Re: vélaskipti í 2.8 diesel pajero

Posted: 26.okt 2013, 20:12
frá oggi
er ekki eitthvað svart plastbox á olíuverkinu sem á að brjóta og tengja einn vír sem er þar inní

Re: vélaskipti í 2.8 diesel pajero

Posted: 26.okt 2013, 20:16
frá thecrow
Ju sennilega er það eina leiðinn plaststykkið jarnstykkið kemur utanum spóluna

Re: vélaskipti í 2.8 diesel pajero

Posted: 27.okt 2013, 00:06
frá Dazzi
Jú aftan á olíuverkinu er svart plastbox sem þú brýtur af með hamri og meitli en passar að skemma ekki spóluna sem er þar undir. Tengir svo eina vírin sem eftir verður í svisstraum og þá dettur hann í gang
Gangi þér vel

Re: vélaskipti í 2.8 diesel pajero

Posted: 27.okt 2013, 00:24
frá Bjarni Ben
Sæll, ég var að enda við að gera þetta við mótor inná bílskúrsgólfi hjá mér, hérna eru leiðbeiningarnar sem þú þarft með myndum, þegar þú ert búinn þá mun þetta líta nákvæmlega eins út hjá þér eins og það gerir á '95árg olíuverkinu hjá mér þarna á myndinni.

viewtopic.php?f=5&t=20248

kv.Bjarni

Re: vélaskipti í 2.8 diesel pajero

Posted: 27.okt 2013, 21:16
frá thecrow
Takk fyrir þettað búinn að græja þettað virkar fint.

Kv ELLI.