Síða 1 af 1
2001 pajero. blikkar millikassaljósi og hjólalega
Posted: 16.sep 2013, 16:28
frá íbbi
er að spá í kaupum á 01 pajero. 33" breyttum
það blikkar bara millikassaljósið í honum og hann virðist ekki fara í drifinn, verð ekki var við að það gerist neitt.
einnig tók ég eftir hvin sem ég myndi telja hjólalegu, hvernig lega er í þessum bílum? ég sá að hún kostar alveg slatta.
með von um svör.
mbk
ívar
Re: 2001 pajero. blikkar millikassaljósi og hjólalega
Posted: 18.okt 2013, 12:55
frá ArnarSig
Blikkandi millikassaljós getur verið bilaður millikassaskynjari. Þeir kosta um 17þ stk og það getur verið soldið vesen að finna út úr því hver af þeim það er (þeir eru 5).
Það var amk skýringin hjá mér. Kostaði um 50þ með skynjaranum að laga þetta hjá Heklu
Re: 2001 pajero. blikkar millikassaljósi og hjólalega
Posted: 18.okt 2013, 12:57
frá ArnarSig
Re: 2001 pajero. blikkar millikassaljósi og hjólalega
Posted: 18.okt 2013, 17:16
frá nobrks
Það er hægt að finna Montero verkst bók á netinu og þá getur maður mælt í plöggi undir miðjustokknum.
Hjá mér voru vírar í sundur, vegna þess að það var búið að afskerma þá til að mæla.
Láttu skipta um hjólaleguna áður en hún fer, því annars þarftu líka að splæsa í öxul.
StálogStansar eru m góð verð
Re: 2001 pajero. blikkar millikassaljósi og hjólalega
Posted: 18.okt 2013, 18:37
frá Navigatoramadeus
skipti um framhjólalegu um daginn í svona Pajero og veit ekki hvort það sé algilt en hún er frekar breið og djö.. ægilega spennandi að ná henni úr nema hvað ABS skynjarinn fór ekki nema með ofbeldi, ss í mask og nýr skynjari 52þkr í Heklu.
einhver partasala held ég á Akureyri átti til skynjara (nýr) fyrir tæpar 15þkr og hann var í original MMC pakkningu !