Síða 1 af 1

2001 pajero 35" upphækkun...hvernig á að lækka bílinn

Posted: 01.mar 2013, 21:16
frá maxi
Sælir.

Er með pajero 2001 sem er með 33/35" breytingunni. Ég verð með hann á 33" dekkjum og langar að lækka hann að framan þar sem hann er svo hár..of hár...eiginlega framreistur...auk þess sem hann er alltof hastur að framan sem ég tel vera vegna hækkunarinnar. Hvernig er þetta gert? Er þetta bara spurning um að taka eða setja minni klossa undir gormana að framan og hjólastilla?

Hefur upphækkunin að aftan einhver áhrif á fjöðrunina þar? Eru ekki bara klossar undir gormunum þar?

Maxi

Re: 2001 pajero 35" upphækkun...hvernig á að lækka bílinn

Posted: 01.mar 2013, 21:18
frá maxi
Er það ekki rétt metið hjá mér að hækkunarklossar að framan gera fjöðrunina stífari eða á það bara við gen II bílana þar sem hægt var að skrúfa fjöðrunina upp?

M

Re: 2001 pajero 35" upphækkun...hvernig á að lækka bílinn

Posted: 01.mar 2013, 21:41
frá maxi
Mér sýnast vera 25mm klossar undir gormunum bæði að framan og aftan. Bilið upp í bretti frá dekki er mun meira að framan en að aftan þannig að hann er svolítið kjánalegur að sjá, framreistur.

Re: 2001 pajero 35" upphækkun...hvernig á að lækka bílinn

Posted: 02.mar 2013, 10:48
frá nobrks
Bilid á allflestum bílum er meira að framan, en ef að sílsa línan hallar aftur þá er klárt mál hann sé framreistur.

Þarftu ekki bara nýja gorma að aftan ?

Re: 2001 pajero 35" upphækkun...hvernig á að lækka bílinn

Posted: 02.mar 2013, 11:41
frá Stebbi
Bílar verða almennt ekki hastir við að hækka upp með klossum nema eitthvað annað fari úr skorðum við það. Er búið að síkka drifin og stýfur líka.

Re: 2001 pajero 35" upphækkun...hvernig á að lækka bílinn

Posted: 02.mar 2013, 12:25
frá maxi
Svona l´tur bíllin út. hann stendur á slitnum 32" dekkjum. Dekkin gætu spilað inn í hastleikann, er með 25 pund í dekkjum.

Ég fór út og mældi upp í sílsa og það var 16" bæði að framan og aftan.

eins og myndin ber með sér þá er hann kjánalegur að sjá.

Image

Re: 2001 pajero 35" upphækkun...hvernig á að lækka bílinn

Posted: 02.mar 2013, 12:28
frá Stebbi
Hann lítur út fyrir að vera óupphækkaður að aftan á þessari mynd. Hann ætti að vera jafn eða örlítið hærri að aftan ef allt er rétt.
Mæli með því að þú rúllir á bílasölu og finnir þér svona bíl sem er á 35" eða 38" og kíkir undir hann til að bera saman.

Re: 2001 pajero 35" upphækkun...hvernig á að lækka bílinn

Posted: 06.mar 2013, 06:16
frá íbbi
ég var mikið á svona bíl í sumar sem var 33" breyttur, s.s með köntunum og á 33x12.5, hann virkaði nú mun lægri á mig en þessi, 32" hefði allavega ekki horfið svona undir hann, 33" tomman var bara akkurat

Re: 2001 pajero 35" upphækkun...hvernig á að lækka bílinn

Posted: 06.mar 2013, 13:47
frá HaffiTopp
Þú ert ekkert að fara að lækka upphækkunina að framan. Það sem gerist í þessum bílum (breyttum og óbreyttum) er að boltar og fóðringahólkar í fjöðrunarstífum að aftan tærast og stirðna og festast fóðringarnar á endanum sé ekkert gert í því. Þekkt vandamal í þessum bílum.
Svo eiga gormarnir að aftan það til að brotna í einum og einum bíl, en byrja á að leggjast saman þegar klafarnir hætta að fjaðra eins og þeir eiga að gera. Sérð það á þessum bílum að þeir séu farnir að síga að aftan þegar dekkin vísa inn að ofan. Þeir eiga að vera örlítið snarreistari að aftan en framan.

Varðandi hastleika/hækkun að framan þá náttúrulega minnkar sundursláttur þar sem þessir bílar eru yfirleitt hækkaðir engöngu með hækkunarklossa ofaná gormana án þess að drifin séu síkkuð fyrir þessa 35" breytingu. Þeir eru reyndar frekar hastir að framan orginal. Ef þú lækkar hann að framan fara dekkin að narta í innrabrettin í fullri beygju.

Re: 2001 pajero 35" upphækkun...hvernig á að lækka bílinn

Posted: 17.mar 2013, 18:35
frá maxi
Takk fyrir þetta. Ég er kominn með hann á 33" og hann lítur miklu betur út. Þetta með að þeir sigi niður að aftan..það passar því dekkin sem komu undan honum voru slitnari að innanverðu en utanverðu...hver er lausnin?

Re: 2001 pajero 35" upphækkun...hvernig á að lækka bílinn

Posted: 17.mar 2013, 18:55
frá flækingur
ástæðan fyrir að hann er að slíta að innaverðu er að hann er farinn að halla hjólunum.. þarft að láta hjólastilla hann sem fyrst til að skemma ekki dekkin:-(

Re: 2001 pajero 35" upphækkun...hvernig á að lækka bílinn

Posted: 13.aug 2013, 19:51
frá maxi
Jæja...lét loksins verða af því að taka klossana úr...vááá breyting á fjöðrun........allt annar bíll