Síða 1 af 1

Rásandi

Posted: 06.júl 2010, 00:59
frá svpajero
Er með Pajero breyttan á 33" dekkjum 15" felgum og ég á í bölvuðum vandræðum með að haldonum stöðugum á malbiki(og möl) þar sem hjólför hafa myndast, hann rásar til og frá. Er þetta eitthvað sem fleiri kannast við með breytta pajeroa eða er hægt að laga þetta á einhvern hátt???? Er frekar nýr í þessu..

Re: Rásandi

Posted: 06.júl 2010, 01:09
frá jeepson
Þetta er svona á súkkuni minni. Maður verður bara að venjast þessu. Það er ódýrasta lausnin :)

Re: Rásandi

Posted: 06.júl 2010, 09:38
frá Þorri
Sennilega er best að fara bara í hjólastillingu með bílinn ef það dugar ekki þá þarftu að leita þér að nýjum dekkjum. Ef það er búið að skrúfa upp fjöðrunina að framan þá er mjög líklegt að það þurfi að hjólastilla.
kv. Þorri.

Re: Rásandi

Posted: 06.júl 2010, 18:24
frá haukur p
ath efri klafan.ef það er komið slit í fóðringarnar þá er maður út um allan veg